Hvað er mikið eftir af appelsíninu?
Það er alveg búið núna, sem er gott
Hver er staðan á klamedíunni hjá þér ?
Sirka einn komma sex kílómetra frá sænum
Hvar myndir þú staðsetja miðjuna á Þykkvabænum?
Það vill til að hún er í björgunavesti.
Eigum við ekki að losa okkur við kellinguna og kasta henni í hafið?
Nei!
Sá ég þig ekki fara dansandi niður laugaveginn og raulandi Despacito um leið ?
Ég er nokkuð viss um að ég setti hann upp á hilluna
Hvað gerðir þú við Despacito?
Hann var nú bara hafður með því hann var svo sætur.
Af hverju leyfðuð þið Donald Trump að sitja fundinn?
Það fer eftir því hvað þú borgar mikið.
Hvað þarf ég að borga mikið?
Hálfur annar hellingur er mikið meira en nóg.
Hvenær er komið nóg?
Eftir mánuð.
Hvenær er mánuðurinn á enda?
Það kom á óvart, ég neita því ekki...
Hvernig leið þér þegar mánuðurinn endaði fyrr en áætlað var?
Ég hoppaði hæð mína af gleði.
Hvað gerðirðu þegar Sigmundur fór í sérframboð?
Hann brast í söng af einskærri gleði
Hvernig tók almenningur fréttunum um að Gestapó væri komið í lag?
Skálað í freyðivíni.
Hvað verður gert ef að Katla gýs?
Ég bara hreinlega lagðist í fósturstellinguna.
Hvað gerðir þú áður en þú fæddist?
Það er allt góða fólkinu að kenna.
Af hverju er ekki skollin á enn ein heimstyrjöldin?
Ég var einu sinni frekar jólaglöggur, en það er af sem áður var. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Af hverju settir þú jólatréið upp í júlí?
Af því að ég borðaði svo mikið.
Af hverju ertu svona fe- hóst stór?
Ómögulega.