Ekkert akkúrat núna.
Ekkert hérna megin heldur, en mig langar í Ís-Cola eða Súkkó til að svala sér á í sumarhitanum...
Er Ís-cola ennþá til? Eða er þetta bara nostalgíuflipp í þér?
Örugglega til einhversstaðar inn í einhverju fjósi út á landi allt klístrað og kleprað...
Viskíið sem rauðskinninn hann Frelsi týndi hérna um daginn.
Volgan appelsínusafa sem ég keypti mér í morgun. Ágætur, en væri betri ískaldur.
Budvar. Fullkaldur enn reyndar, en þetta er besti lagerbjór sem fáanlegur er á þessu bjórskerta skeri. Bestu fáanlegu saltkringlur gera þetta enn betra. Dæsir og fær sér annan sopa
Heineken af Hollenskum ástæðum klórar sér í höfðinu
volgt vatn
sér annað glas á borðinu með vatni í og gubbar
H2O.
Ískalt kóka kóla.
Ég er líka að snæða svokallaðan TexMex borgara. Reyndar virðist sá borgari bara vera venjulegur borgari með barbíkjúsósu. Ég verð að segja að ég er ánægður með þennan matverð. Borgarinn er vel frambærilegur, þó barbíkjúsósa er kannski ekki staðalfæða á borgara sem fara inn um mínar varir. Það ótrúlega við þennan borgara er verðið. Borgarinn (venjulegur eða texmex), nokkrar franskar og sósa á 399 kr. Þetta er til sölu á TexMex veitingastaðnum á Langholtsvegi. Mæli með þessu fyrir fátæklinga.
Hættir að borða upp úr ruslinu og les innlegg Hakuchi Vúhú!
Ég er að drekka Sítrónu Topp, eða það sem er eftir af honum Blótar herfilega Hafið þið tekið eftir því að það gýs alltaf upp úr helvítis flöskunni þegar maður opnar hana? Dæsir mæðulega og sendir Kóka kóla kaldar kveðjur
Íslendingar hafa aldrei kunnað listina að búa til almennilegt sódavatn. Ölfyrirtækin hér á landi tæma heilu gaslindirnar í hverja flösku. Siðuð ríki hafa minni kolsýru, það er galdurinn.
Coca Cola
It is made by the devil, and i like it!