Er að hlusta á uppáhaldshljómsveitina, Underworld, flytja sitt sjaldgæfa lag "Why, Why, Why"
Er að fara að skoða heimabankann minn á netinu og athuga hvort ég þurfi að vera með móral yfir helginni...
Vér erum inni á Gestapó Baggalúts að fara að smella á "Senda"...
Nuj, feministi. Þú hefur ekki látið sjá þig lengi. Vertu velkominn aftur.
Ég ætla að rölta út á bókasafn innan tíðar og sofna yfir einhverri bókinni.
Já, gott að vera komin aftur, en ég lagðist í þunglyndi þegar Baggalútur var lagður inn á hersjúkrahúsið á Ísafirði. Ég gleymdi síðan allt of lengi að láta mér batna.
hellir gleðipillunum í vaskinn
Enn að reyna að vakna, það mistókst að gera það almennilega er vér reyndum það í fyrradag.
Ég er á Bessastöðum og skrifa undir sáttmála fyrir forseta Íslands.
Hlusta á tónspil úr tölvukassanum og vona að ég sé ekki að fá hálsbólgu. Já svo er ég líka að íhuga hvort ég eigi að fara eitthvað úr sloppinum í dag.
Er að hlusta á Smashing Pumpkins flytja sitt fullkomna lag: "Perfect"
Er að fara að ná í nýviðgerða felgu í Kópavoginn og í framhaldi af því fer ég út á Nes og læt setja dekkið á og undir bílinn.
Ég er að undirbúa baðferð og svo í vinnuna með tilheyrandi fyrirlestrahaldi...
Er að búa til nýtt tungumál sem á að kallast "þessi stafir eru ekki til í þinni heimsku tölvu". Ekki flottir stafir sem ég bjó til?
Vinnu er lokið, ríkið bíður og helgin fram undan. Getiði þrisvar hvað ég ætla að gera...
Drekka ákavíti? bíður spenntur eftir svari