Suð austan suð og sól á köflum.
Norðaustan stormur og sjógangur í Breiðumörk.
Leiðindaveður. Norðan kalsi og við það að grána í rót á láglendi.
Bara skratti fínt miðað við að í dag er búist við heimsendi.
Betra en það hefur verið lengi.
Í dag var svonefnt sýnishornaveður í Suðursveit.
Svona skítsæmilegt miðað við það sem á undan hefur gengið – a.m.k. hér á suðvesturhorninu.
Reykjavík kl 11:30 Vindur 120gráður 11hnútar - nokkur ský 2100fetum skýjahula í 4600 fetum hiti 10 stig - daggarmark 6 gráður - Loftþrýstingur 1017 hectopascal.
Hér er léttskýjað og hlýtt. Rigning hefir engin verið í dag, svo nokkru nemi.
Reykjavík kl 21:00 UTC Vindur 150 gráður 6hnútar.skyggni meira en 10km. skýjahula í 12000 feta hæð, hiti 11stig daggarmark 6 stig. Loftþrýstingur 1018 Hectopascal.
Semsagt suð suð austan 3ms, skyggni ágætt, hiti 11 stig. Kanski er að koma smá sumar.
Hæglætis veður suðvestan til, en búast má við að einhver leysi vind austan til.
Hæglætis veður suðaustan til einnig, en nokkur skýjahula. Hiti á bilinu sex til tíu stig.
Kyrrlátt reykvísk sumarnótt.
Alveg ljómandi. 17 stig í sundlaugunum og tanförin eftir því.