Kannske í Kratafirði, en það er gott að búa í Kópavogi.
Fer í Leifs Óheppna eftirhermubúnínginn
Það fór að snjóa, og það snjóað' og snjóað' og snjóað' og snjóað' og snjóaði.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Nokkuð sæmilegt bara.
Alveg yndislegt. Heiðskír himinn og sól. Var i dag.
Hér innannhúss er veðrið fínt, en utannhúss gengur á með dimmum éljum
Sæmilegt, sýnist mér, er ég lít út um gluggann.
Hér er vor í lofti, snjórinn óðum að hverfa en ansi mikil ísing á götunum svona í morgunsárið.
Í tilefni af þessum þræði þykir stjórn Veðurfarsstofnunar Baggalútiska heimsveldisins rétt að koma eftirfarandi á framfæri:
Kæru þegnar Baggalútíu.
Það markmið Veðurfarsstofnunar að hafa ávallt gott veður í Bagglútíu hefur náðst. Ef einhver er ósámmála því eða hefur yfir einhverju að kvarta í sambandi við veðrið, skal hann fylla út sérstakt kvörtunareyðublað í níuriti og koma því til Veðurfarstofnunar Baggalútíska heimsveldisins, ásamt frímerktu, árituðu umslagi og óútfylltum tékka stíluðum á Veðurfarstofnunina. Stofnunin mun þá senda, innan 6 vikna, umbeðið veður og einnig góða veðurspá sem getur náð allt að 3 vikur fram í tímann. Eyðublöð er hægt að nálgast í öllum helstu Ráðuneytum Baggalútíska heimsveldisins og sendiráðum um allan heim gegn hóflegri greiðslu.
Virðingarfyllst
f.h Veðurfarsstofnunar Baggalútíska heimsveldisins
Huxi (sign)
Er ekki betra að segja núriti eða næriti?
Annars er ég bara sáttur, fínt gluggaveður er glapstigu betra.
Kífinn: Nei.
Ekki þessa óbilgirni Huxi minn, erum við ekki sett á þessa jörð* til að fleyta fram málinu og koma áfram viðsjárverðum málstað dauðaóttans.
*jörð: skjár í þessu tilviki með einhverjum harð- og linbúnaði
Kífinn: Þú kemst ekki upp með það að valda misklíð og deilum hérna þó að þú viljir standa undir nafni. Eyðublöð skulu vera í níuriti og búið með það.
Ef þú vilt að breytingar verði framkvæmdar á eyðublöðum, skaltu bera þær tillögur undir stjórn Veðurfarsstofnunar, Forsetaskrifstofuna, Nefndamálaráðuneytið og Umsýslueftirlitið ásamt með umsögnum frá samtökum eyðublaðahönnuða, skógarbænda og félagi timburfleytara og sögunarmyllueigenda. Eyðublöð fyrir eyðublaðabreytingar liggja frammi á skrifstofu Eyðublaða- og skýrsluumsýslustofnunarnefndar sem er, að ég best veit, ekki starfandi nú um stundir vegna sumar- og vetrafría starfsfólks, sem vegna þess hve páskarnir eru seint á þessu ári, runnu óvart saman við uppsöfnuð jóla og hlaupársfrí. Auk þess þarf að greiða sérstaka þóknun til allra ofantalinna aðila, (upphæðin ákveðinn af forsvarmönnum viðkomandi stofnanna), og svo er vissara að henda svo sem eins og 1000 böggum í Doninn, svo hann verði ekki með uppsteit.
Eru eyðublöðin sjálfkalkerandi eða þarf maður að mæta með sinn eigin kalkípappír?
Að sjálfsögðu er bannað að mæta með eigin kalkipappír, þ.e. óvinir ríkisins gætu auðveldlega hafað laumað sjálfafritandi búnaði í hann og komist þannig að ríkisleyndarmálum. Löggiltan kalkipappír er aðeins hægt að fá í afritunar- og eftirlitsskrifstofu Umsýsluráðuneytisins og þarf umsókn um hann að berast í þríriti með þriggja vikna fyrirvara, ásamt með óútfylltum tékka stíluðum á ráðuneytisstjórann, hvers nafn ég man ekki í augnablikinu. Kalkipappír skal ávallt skila eftir notkun til gjöreyðingardeildar Forsetaskrifstofunnar að viðlögðum hörðum refsingum sé það trassað, eða að skrifstofunni skal send rífleg greiðsla í formi Plútóníums eða Kóbalts, ásamt loforði um að eyða kalkipappírnum sjálfur.
Þú ert vonandi ekki búinn að gleyma sérreglunum fyrir kóngafólkið?
Gengur í dýru draktinni út í sólskinið fullviss þess að rigningin verði í föstu formi
Nei. Auðvitað gleymi ég þeim ekki. Kóngafólk fyllir ekki út eyðublöð og notar ALDREI kalkipappír. Ljómar upp