EUREKA !
Svo virðist sem tímavjel vor virki að nokkru leyti því veðurvjel Hakuchis er augljóslega biluð líkt og vjer sáum fyrir að myndi gerast. Sjest þetta á því að það er kominn vetur og eigi útlit fyrir breytingar á því svo langt sem sjeð verður. Förum vjer hjer með formlega fram á að þegar í stað verði hafist handa við viðgerðir á veðurvjelinni og að unnið verði sleitulaust þar til þeim lýkur, jafnvel þó það þýði e.t.v. stöðuga vinnu langt fram á vor.
Sé að þú hefur kippt þessu í lag. Duglegur!!
Í lag ?! Hvar eruð þjer eiginlega staddir ? Í Sahara ?
Innanhús í Reykjavík, sólin skín sem fegurst....
Sólin fannst mér fögur mjög, þar til augun í mér bráðnuðu og hún hefur ekki komið aftur upp síðan
Hér í Quito er 23°C hiti og sólskin og blíða. Hlær illyrmislega
Kvikindi!
Hér á norðurlandi eystra er hríð. 40 sentimetra jafnfallinn snjór í garðinum mínum.
Hmm...þetta er kannski orðið fullmikið hjá mér.
Reyni að laga þetta.
Hér er hundslappadrífa.
Hún er alltaf skemmtileg.
Hjer er hitinn um frostmark og nokkur vindur. Eigi kæmi oss á óvart að þetta væri versta septemberhret hjerlendis í mörg ár Bölvar veðurvjelinni. Snjór er þó eigi á láglendi en Esjan er að mestu hvít og búin að vera það í nokkra daga.
Hér er hundslappadrífa.
Hún er alltaf skemmtileg.
Sammála. Sérstaklega að sjá hana fram á rúðuna á bílnum, þegar maður er að keyra.
Svo rólegt, afslappandi og rómantískt!
Stundum er hún þó kölluð ljónslappadrífa.
Hmm...þetta er kannski orðið fullmikið hjá mér.
Reyni að laga þetta.
Það væri ekki verra minn kæri konungur. Mig er að fenna í kaf.
Já, er það? bœtir ljónslappadrífu á orðlista dagsins
Ég mæla með því, að horfa á hundslappadrífu að neðan, meðan maður er sjálfur tryggur undir t.d. glerþaki og allra helst með rauðvínsglas í hendi.
fær gríðarlegt vetrarsaknaðarkast
Einnig er áhugavert að leggjast á bakið í snjó nálægt (helst háum) ljósastaur Minnist slíks úr æsku.