Hjá mér er all skýjað en þó gægist sólin milli skýjanna
Miðlungs sólskin, -2 gráður og nánast logn. Sem sagt; ég ætti að vera úti.
Logn, allbjart, úrkomulaust og rúmlega 20 stiga hiti (veðrið þar sem vér erum staddir, þ.e. innandyra)
Sæmilega hæýtt, þ.e.a.s. 666 gráður, vítiseldar loga, en lætin í öllum þessum glötuðu sálum eru að gera útaf við mig!
Þarna þekki ég þig sykurpúðinn minn[tekur Hilmar og knúsar hann allhressilega]
Hvað var það sem lá dautt? Ef það er Stinnings kaldi þá handsömum við hann með það sama! Annars er föl á hjá mér og skítkalt.
Yfir Skandinavíu er 993 mb lægðasvæði sem grynnist. Um 900 km SSV í hafi er minnkandi 1031 mb hæð, en á Grænlandssundi er vaxandi 1015 mb lægð sem þokast NA.
Ógeðslega leiðinlegt veður maður, skítkalt og stórhættuleg hálka yfir öllu. Amma datt í gær og lærbrotnaði og ég þurfti að dúsa með henni á slysó í fimm klukkutíma. Helvítis skítaveður og skítaheilbrigðiskerfi.
Austan 2, úrkoma í grennd, skyggni 15 km, frost 2 stig, loftþrýstingur 1020 mb fallandi
Þoka, en sól í Grennd, snjókoma á Stökustöðum og hiti um frostmark, haugablíða og rjómasjór.
Kalt, skýjað en logn.
Vor í lofti...