Landið ísa veðravíti
vindsins næfa sker.
Líparít og gráagrýti
græðir landið hér
-i.
-já eða þannig sko, ódýr ending hjá Geima.
Hér eru mennirnir mjög svo
margir að grína og spauga.
Fásinna slíkt nú mér finnst sko,
þið fábjánar, asnar og hauga
r.
Ljóðin á íslenskri ensku
yrki ég hérna af festu
Spring svo úr mikilmennsku
máski ég sé hérna bestu
r?
Framtíðarhugsjón mín hálf er
helst ekki bundin við álver.
Ef illa á helst
þá eflaust hún selst
jafn ódýrt og meðalstórt málver-
k.
[Þráður vikunnar að þessu sinni er Fimmskeytlan]
Viku þessa styrkjum stuðið
stímun hratt að kvöldsins skör.
Að fornu'og nýju fer því puðið
því fimmskeytlan er ansi snör-
p.
Þó að leggist land í dý
lukkupott vér hrundum í
að geta síðar greint frá því
er góðærið varð fyrir bí
l.
Blessuð nálgast brandajól,
börnin verða alveg spól-
vitlaus því þau vantar hjól
og viðbúið að krílin gól-
i.
Ég er kátur klár og snjall
kann mikla útlensku.
Vitur, mikið viskufjall
varla er ég mennsku-
r.
Í mér blundar sífull sál
sofnar gjarnan edrúbál
hjartað blautt og hausinn kál
hér er ykkar drykkjuskál-
d
p.s. leyfilegt er að skipta út d-inu fyrir m
Þrettándinn er þunnur hér
þeigi mikið vit
Hérna er gott að hægja sér
hræra rassa skit
u
Eg vil landa ekkert mein
eða drekka lítið öl.
Narta'í belti, naga bein
nú á margra kosta völ-
d
Skabba príðis tel ég pilt
prúðan og vel látin.
á lútnum hefur strengi stilt
strák ég þarf á bátin
n
Flott vísa, Lappi.
Þessi var nett. Ljómar upp
Við þér blasir kveðjan köld
Kvæðaþras i dag
Fyllum glasið fyrir höld
Frumlegt mas skal lag-
-a
Bræðum saman lipur ljóð
lofum íslenskt tungumál.
Kneifum fornann sagnasjóð
saman kæru bræður skál-
d.
Ef ég ætti upp að telja
Íslands syni besta, þá
held ég fyrst ég hlyti að velja
hetju sanna, Ólaf Pá-
l.
Óli Pá nú pírir á
sinn pínu lim.
Hann líta á hún Lauga má
í línu fim-
m.