Háttsettur embættismaður baggalútíska heimsveldisins ætti að vita betur.
Lætur hafa til fallöxina
Sjálfur konungurinn ætti að vita betur en að beita verkfæri þeirra afla sem lögðu mónarkíið af sem öfluga og góða stjórnarhætti![/s]
Það eruð mannkyninu öllu til skammar! Sem verður að teljast mikið miðað við alla þá skömm sem fylgir því ömurlega hlutverki að geta talist manneskja. Horfir með fyrirlitningu á alla, nema bauv og Gogginn, og lætur þá finna fyrir augnaráðinu
Sendir leigumorðingja á Günther Zimmermann
Veitir Günther Zimmermann varfærnislega eftirför þar sem að leið hans liggur í vinsæla útivistarparadís. Svo virðist sem Günther Zimmermann sé að fara í "fuglaskoðun" sem reynist vera yfirskin til þess að funda við Danska úrsendara í þeim illa tilgangi að koma í umferð Danskri þjóðlagatónlist. Þrátt fyrir hráslagalegt veður og stöku él eru nokkrir "hreyfiperrar"* á ferð. Það virðist ekki trufla för hans.
Hraðar sér afsíðis og heldur í gegnum skóglendið og finn heppilegt kjarr til þess að felast í
Flóttalegir ganga fundarmenn um og Günther Zimmermann lítur um í kíkinum líkt og hann sé að skoða fugla, en á fasi hans má sjá að paranojan er mikil... var hann eltur, komst hann óséður? Skrúfa sérsmíðan hljóðdeyfinn rólega á riffilinn og tek lokin af hrikalega stórum sjónaukanum Danirnir tala eitthvað óskiljanlegt tungumál og "okkar" maður virðist skilja þá vel, fjarlægðin er þó of mikil til þess að heyra í þeim. Legg riffilinn upp að öxlinni og fylgist rólegur með í sjónaukanum Það hefur ekki sést til hreyfiperra í langan tíma. Danirnir eru með eitthvað handapat og Günther Zimmermann litast enn um í kíkinum. Sleppir ekki af honum auganu og tek öryggið varlega af
Nú beinir Günther Zimmermann kíkinum í að átt að mér. Eitt augnablik frýs hann er augu okkar mætast. Dimm en lág þruman rýfur kyrrðina og hægra sjónglerið i kíki Günthers sundrast. Þetta var það síðasta sem hann sá þann daginn. Dimm él gengur yfir og hylur sporin um leið og ég forða mér af vettfangi
-------------------------
* Skokkarar.
Hendir nýja Bang og Olufsen öryggiskíkinum frá sér. Hleypur í næsta safe-house
♪Vi er røde, vi er hvide...♪
Afhendir Albin nýja ofurhraða Leinimorðingjariffilillin frá ójohnsen og Wium sem fer í gegnum allt
Klórar sér í höfðinu Fer í gegnum allt? Á ofurhraða? Riffillinn? Ertu ekki að nota hann á svolítið furðulegan hátt? Eða eru þetta þessir nýju kastrifflar með þotuhreyfli frá H&K? Jaá, hlaut að vera.
Afhöfðar hafmeyjuna í Ko/benhavn með júdóhöggi til að vera með
Sprengir allar bjórverksmiðjur í Danaveldi
Danskur kunningi minn spurði mig fyrir nokkru afhverju í ósköpunum við værum að halda úti heilu tungumáli fyrir okkur rétt 300.000 hræður, hvað þá heilli þjóð! Þá spurði ég hann hvort það væri nokkur munur, glóbalt séð, á 300.000 eða fimm miljónum, hann varð hugsi um stund og sagði svo: Nei. Sumsé, burt með dönsku og íslensku og inn með enskuna!
Gott hjá honum. Danir geta verið óttalega vitlausir en þeir hafa það þó fram yfir Íslendinga að hafa konungsveldi. Í guðanna bænum ekki koma núna með gömlu klisjuna um að Óli frændi hagi sér eins og kóngur bla bla bla. Ég er að tala um the real thing. Bessastaðir er gömul skólabygging, enginn höll. Ég er viss um að fröken Schwarzkopf yrði til friðs ef hún fengi að búa í höll. Best væri náttúrulega ef hér væri pre-1789 konungsríki, þ.e. einveldi án þjóðkjörins þings.
En ég er nú bara svo gamaldags.
Baggalútía er hér með opinberlega óvinaþjóð Gaiusar Júlíusar Sesar og lýsi ég hér með formlega yfir stríði!
Það var kominn tími til.
Hrifsar önugur pítsurnar úr höndum Sesars og borgar uppsett verð
Hálftímaheimsending minn rass.
Skellir á Gaius
Ja hérna, þetta fer bara að verða eins og í gamla daga. Stjórn og stjórnarandstaða eða jafnvel óvinaþjóð eins og Sesar kýs að kalla það. Hvað vill þessi ritstíflaði nýgræðingur eiginlega upp á dekk?
Bandaríkin! Ég fékk ekki það sem ég á skilið í síðustu heimsókn minni á þetta skítapleis! Skjóta þessar kleinuhringjaétandi feitabollur í tætlur eins og skot!
Til vopna!
Gramsar í handtöskunni eftir púffsprengjum og mygluðu kakói
ÉG legg til að Legoland verði sett á óvinalistann!
Varpar 100 bowlingkúlum á Legoland