Ekki er gott að gleyma sér
og gefa skít í braginn.
Til fyrirmyndar finnast mér
fíbbl sem yrkja á daginn
Ansans kuldi allstaðar
mest á Akureyri
þar eru mærar mjög graðar
milljón eða fleiri
oft er ströggl að stuðla rím
stökuböggli háir
hehe það verður gaman að sjá menn finna nothæt innrímorð í þetta
oft er ströggl að stuðla rím
stökuböggli háir
Byssuhögl og bráðum hrím
bara mögla fáir
Innrím stundum erfitt er
ekki var þó hérna
Innrím stundum erfitt er
ekki var þó hérna
Botnað hefði getað hver
herbergjanna þerna
bollur til ég bjó úr þorsk
bætti út í lauki
Bollur til ég bjó úr þorsk
bætti út í lauki.
Nota bara sílin norsk
nudda salt úr stauki.
Villtur elti veiðidýr
veikur er á geði.
-
Villtur elti veiðidýr
veikur er á geði.
Hlunkaði á hreinakýr
Höktir sveinka sleði
Bollur voru bragðgóðar
bættu í ístru pundi
Viltur ellti veiðidýr
veikur er á geði,
allar eru brotnar brýr
byssuna setti að veði.
Mér í gaula garnirnar
glorsoltinn er núna,
Hvusslax yfirgangur er þetta
Mér í gaula garnirnar
glorsoltinn er núna,
varla ístru varnirnar
virka nú á frúna
Bollur voru bragðgóðar
bættu í ístru pundi
Of seinn. ha?
Bollur voru bragðgóðar
bættu á ístru pundi
komu kellur lafmóðar
og kófsveittar úr sundi.
Eltir hundur annan hund
hundeltur má kallast,
Eltir hundur annan hund
hundeltur má kallast
Köttur ei kátur fer í sund
í kalið faðmlag þau fallast
Kisulóra kann að klóra
krafsa sundur sófa
Kisulóra kann að klóra
krafsa sundur sófa
engin er í þessu glóra
enda tildur rófa.
Agurkan víst er vön
vísu saman hnoða,
Agurkan víst er vön
vísu saman hnoða,
Eflaust spratt á eynni Mön
undan leir og hroða
Gúrkur eru gagnleg tól
Gera marga káta
Gúrkur eru gagnleg tól
Gera marga káta
Þegar konur verma ból
þær eina í klofið láta.
Þessi var nú voðaskot
víst mig verð að vara
Þessi var nú voðaskot
víst mig verð að vara
Af hverju að yrkja um pot?
Af þvi bara
Stundum á að stemma við
stuðla yfirskoti
Stundum á að stemma við
Stuðla yfirskoti
Nema'ð nenni nafnið
núna'ð nautnum njóti
Enn er mikið endalaust
og enþá mikið kveðið
Enn er mikið endalaust
og enþá mikið kveðið
Nú er komið hrímkalt haust
helkalt og mjög freðið
Hálftómt nú er glasið gott
gerist ekki verra
örlítið stolinn seinnipartur þarna...
Hálftómt nú er glasið gott
gerist ekki verra
Með snítubréf, snáfar brott
Snemma sumar, herra
Vetur kemur vondur kall
versnar matsæld mjög
Vetur kemur vondur kall
versnar matsæld mjög
Októberfest eðalsvall
ætti að setja í lög
Mikið er hún Rannveig Rist
raunamædd á svipinn
++
Mikið er hún Ranveig Rist
raunamædd á svipinn
prófa mætti polka og tvist
pínum ekki gripin.
Duna mun nú dansinn brátt
dömur til í slaginn,