— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 101, 102, 103 ... 455, 456, 457  
GESTUR
 • LOKAР• 
Afbæjarmaður 20/7/04 10:00

Sjáið nýju myndina mína
mestur kappa þar birtist
Fífl er kannski Fíbblína
fígúra sem hristist

Kátar voru konur
á Kerlu RE sjö

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 20/7/04 11:09

Frumvarpið um fjölmiðlana
fallið er í gleymsku og dá
Auminginn Davíð andvana
aulalegur hrökklast frá

Vertu núna vinur góði
varasamur um þinn hag

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 20/7/04 11:35

En það gerir ekkert til
elsku hróið mitt
Sem aðrir óánægju dyl
og öskr'í hljóði "shit"

Leirburður er leiðinda
löstur sálmum á

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 20/7/04 12:55

Leirburður er leiðinda
löstur sálmum á
grætir jafnvel glaðlynda
guðsmenn, svei mér þá.

Sálmagaul mér sjálfum finnst
sálarþraut og pína

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 20/7/04 13:45

Sálmagaul mér sjálfum finnst
sálarþraut og pína
Af leirburði vil vita minnst
vont slíkt fyrir sálu mína

Hér eru sálir til sölu
sem ef nýjar væru

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 20/7/04 14:50

Hér eru sálir til sölu
sem ef nýjar væru
kostar túkall og tölu
tafarlaust sel mína æru

Hákon í heljargreipum
handleikur sál mína nú

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 20/7/04 20:52

Hákon í heljargreipum
handleikur sál mína nú
andinn sem reirður reipum
rembist með vankaða trú.

Heldur í víti mér hlýja
en húka í gufu kaldri

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Heillar 20/7/04 22:24

Heldur í víti mér hlýja
en húka í gufu kaldri.
Hugnast skár helvískra spýja
en hljóðið í englaskvaldri.

Vængjaþytur virðist mér
vera helst til ama.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 20/7/04 22:34

Vængjaþytur virðist mér
vera helst til ama.
Fiðurengla fráleitt ger
farið, oss er sama

Fyrst að rjúpur fást ei meir
finnst mér rétt að skjóta ...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 20/7/04 22:46

Fyrst að rjúpur fást ei meir
finnst mér rétt að skjóta
skelk í bringu og skatta - Geir
skömm þeir gera ljóta.

Voðaleg er vargaöld,
allt vitlaust er í þingi.

Ísland úr NATO og herinn burt!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 20/7/04 22:58

Voðaleg er vargaöld,
allt vitlaust er í þingi.Leik þar eru léleg tjöld
laumast menn í hringi.

Gapa ýmsir apar þar
úr sér þvæla raupi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 21/7/04 00:21

Gapa ýmsir apar þar
úr sér þvæla raupi
Út á villtan villast bar
og vonast eftir kaupi.

Þegar tapar þjóðarstjórn
þá er fátt til ráða ...

Ísland úr NATO og herinn burt!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 21/7/04 07:53

Þegar tapar þjóðarstjórn
þá er fátt til ráða ...
...nema... enga færa fórn,
- fá þá aftur báða.

Gaman var á Galtarlæk
gliðrur lágu víða

það mætti svossem bæta "r" fyrir aftan ef menn vilja.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 21/7/04 10:38

Gaman var á Galtarlæk
gliðrur lágu víða
Allar höfðu illan kæk
Allar vildu ríða.

Dabbi gunga laut í gras.
Gat ei punginn fundið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tinni 21/7/04 11:07

Dabbi gunga laut í gras.
Gat ei punginn fundið.
Gerist ef kíkt er um of í glas
að geta ei orð sín bundið.

Sögu vil ég segja stutta
um rafræn skilaboð

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 21/7/04 11:08

Dabbi gunga laut í gras.
Gat ei punginn fundið
óþoland'er þetta þras
er þið háu herrar stundið

‹Fjandinn... of seinn›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tinni 21/7/04 11:12

‹Við settlum þetta með því að nota þinn fyrripart›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 21/7/04 11:22

Sögu vil ég segja stutta
um rafræn skilaboð
fjall'um Tobba, Tinna hvutta
trygga hetjustoð

Mús við múrinn læðist
músagildru hjá

‹Nú ættu öll vandamál að vera úr sögunni›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 101, 102, 103 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: