baggalutur.is er besti vettvangur kvæðamennta á Netinu og ber að endurvekja hið snarasta.
Hér með stofna ég þráð til að snillimenni á vef Baggalúts geti komið á framfæri nýjum kenningum!
Nokkur dæmi:
júgurbelta freyja: kona
tíðatappa gná: kona
heitmey Jósefs: María
barnsfaðir heitmeyjar Jósefs: Drottinn (hér er tvíkennt)
kviðmágur Jósefs: Drottinn
kviðmágur Drottins: Jósef
Æskilegt er að vísa fylgi hverri nýrri kenningu, eins og hér t.d.:
1. kenning. Dæmi:
Aum og leið er ævi Jóns,
ekkert fer að vonum.
Júgurbelta freyjur fróns
flýja undan honum.
2. kenning. Dæmi:
Ósköp líða maður má,
meyjar fríðar engar sjá,
sérhver tíðatappagná
trítlar síðum brókum á.