Hvernig væri að halda árshátið annað kvöld? Þá á ég lausa stund í Rvík.
Ég get alveg mætt annað kvöld svo lengi sem ég þarf ekki að ferðast lengra en 10.7 km. frá Huxastöðum.
Í kvöld eða annað kvöld?
Ekki á fimmtudegi... Það er ekki gott fyrir starfsframann. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Það hefði einmitt verið fínt fyrir hann. En nú er kvöldið farið í vitleysu.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Er árshátíðin búin? Starir þegjandi út í loftið
Þar eð síðasta árshátíð (eða ígildi árshátíðar) var á þessu ári teljum vjer úr þessu liggja beinast við að næsta árshátíð verði snemma á næsta ári, þ.e. í janúar eða febrúar.
Þar eð síðasta árshátíð (eða ígildi árshátíðar) var á þessu ári teljum vjer úr þessu liggja beinast við að næsta árshátíð verði snemma á næsta ári, þ.e. í janúar eða febrúar.
Forseti vor hefur talað. Skál fyrir því.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun komið nýtt ár; vantar oss þó enn formlega staðfestingu á að örugglega sje svo í raun og veru.
Ég er ekki viss.
Getum við ekki bara tjaldað í garðinum hjá einhverjum? Ég skal grilla.
Ja, ég gæti sossum grillað fisk ef einhvern langaði í.
Maður tekur svona til orða sjáðu til.
Ég vil fá lambakjöt þakka þér fyrir, grillað á heima gerðum kolum. (Marinerað í uppáhalds skjólunni þinni.)
Ég vil gjarnan fá glóðaðan hest, en aðeins ef þú getur vottað að grillið hafi aldrei verið fiskmengað. Gott væri að fá nokkra svellkalda blúta með þessu svo hesturinn standi ögugglega ekki í mér.
Ég er til í grillaðan hest. Ég ligg á 5 kössum af blút og 7 flöskum af sterku sem enginn vill hjálpa mér með.