Svo að sambærilegt innlegg mitt frá árinu 2010 sé nú endurtekið:
Hvað segiði? Eruð þið spennt fyrir árshátíð? Eða er orðið allt of fámennt hérna?
En ef þið eruð spennt fyrir árshátíð haustiið 2012, þarf þá ekki a.m.k. að kanna hverjir hafa áhuga á að mæta?
Og leyfa svo fólki að berjast um sæti í árshátíðarnefndinni?
Forðar sér til að verða ekki undir troðningnum þegar áhugasamir frambjóðendur í árshátíðarnefndina ryðjast inn um dyrnar.
Ætli það verði ekki bara partý einsog seinast?
Ég er til í partý við tækifæri.
Árshátíð er hugsanlega 'yfirdráp' nema þátttaka verði þeim mun meiri en partí líkt og síðast hljómar afbragðs vel.
Ég mæti... hvort sem haldið verður.
Árshátíð, já... maður myndi nú taka strandfararskipið til höfuðstaðarins, ef áætlun stenzt, til að taka þátt í slíkum viðburði...
Ef ég fæ að ráða hvenær eins og síðast þá kem ég sennilega.
Afhendir Uppa Ráðsmannssvuntuna við hátíðlega athöfn
Ef ég fæ að ráða hvenær eins og síðast þá kem ég sennilega.
Með því skilyrði að ég komist líka.
Ég hef nú ekki mætt á slíkan gérning síðan ég mætti síðast...... Kanski alveg kominn tími til
Ég er svo sannarlega til í partí, jabbbnvel með apaköttunum Úbba og Uppa. xT
Oss líst vel á að Upprifinn fái að ráða tímasetningunni eða a.m.k. fá mikið um hana að segja.
Ég hef nú ekki mætt á slíkan gérning síðan ég mætti síðast...... Kanski alveg kominn tími til
Það væri mjög áhugavert að fá að vita hvort einhverjir hafa mætt eftir að þeir mættu síðast því ef hægt er að finna dæmi um slíkt er um sjerlega athyglisverða rökfræðilega mótsögn að ræða sem ógnað gæti grundvelli alheimsins.
Partí, partý, artí, fartí. Eg mæti og verð til vesens.
Oss líst vel á að Upprifinn fái að ráða tímasetningunni eða a.m.k. fá mikið um hana að segja.
Ég hef nú ekki mætt á slíkan gérning síðan ég mætti síðast...... Kanski alveg kominn tími til
Það væri mjög áhugavert að fá að vita hvort einhverjir hafa mætt eftir að þeir mættu síðast því ef hægt er að finna dæmi um slíkt er um sjerlega athyglisverða rökfræðilega mótsögn að ræða sem ógnað gæti grundvelli alheimsins.
Ég hef alltaf mætt frá því að ég mætti síðast, utan hið fyrsta skiptið.
Ég hef ekki mætt frá því ég mætti síðast. en hinsvegar hef ég einu sinn mætt frá því ég mætti þar síðast.
Ég mætti nú ekki einu sinni síðast þegar ég mætti hvað þá síðan.
Ég datt niður í að lesa gamalt félagrit um árshátíð og komst að því að formaður árshátíðarnefndar þarf aldrei að gera neitt. Ég býð mig því hér með fram sem formann ársteitis.
Fæ ég mótframboð? Hverjir vilja vera með í nefndinni?
Pant ekki.
En ég vil samt ráða.