Hef í félagi við Ólaf Kárason opnað fótsnyrtistofuna Skaftá.
Árstíðabundinn bráðakristnifaraldur
Fjöldahjálparstöðvar hafa verið opnaðar í flestum byggðarlögum. Áfallahjálp og hópmeðferð veitt reglulega allt til miðnættis yfir hátíðirnar. Sjá nánar á vef einkaleyfastofu, kirkjan.is.
Samfasari óskast
Óska eftir samfasara fyrir geimvopn mitt, er ég hefi komið fyrir í Viðey.
Samfasari óskast
Óska eftir samfasara fyrir geimvopn mitt, er ég hefi komið fyrir í Viðey.
Vjer eigum lítið notaðan og vel með farinn samfasara sem vjer erum reiðubúnir að láta frá oss í skiptum fyrir sk. exotic matter.

Ég á helling af þessu Exotic matter en mig bara langar ekki í samfasara.

Áður en endurkvæmni dýpkar enn frekar: Gæti hugsast að Upprifinn vildi láta hr. Fuckov í té frygðarefni (e. exotic matter) gegn bylgjulengd í geimvopni mínu, t.d. 510 nm?
Þér hlýtur að vera fullljóst að Upprifinn mundi miklu fremur vilja bylgjulengd í kringum 580 nm, herra Stephan! Ég skal þó glaður þiggja þessa 510.
510 nm eru þínir, hr. Goggur -- eðli mál samkvæmt! Enda býzt ég við tilhlýðilegu endurgjaldi í formi samfösunar eða ígildis slíks.
Plútóníumkúlur til sölu – kjörnar til hálkueyðingar
Hef fyrirliggjandi blýhúðaðar plútóníumkúlur* sem kjörnar eru til hálkueyðingar. Kúlunum má strá yfir stéttir og bílaplön, eða jafnvel blanda í malbik. Um er að ræða varanlega lausn** á hálkuvandanum.
*Virkt innihaldsefni er Pu 239, með helmingunartíma 24 þúsund ár og niðurbrotsorkuna 5,5 MeV.
**Framleiðandi ábyrgist ekki mögulegar hliðarverkanir, er hlotizt geta af óvarlegri meðhöndlun.
Vatnshverflar til sölu – virkjum kalda vatnið!
Í dýrtíð þeirri, er nú ríkir, er þjóðráð að virkja kalda vatnið til raforkuframleiðslu.
Fyrir þá, er greiða fast gjald fyrir kalt vatn, er kaldavatnshverfill óumdeilanlega góð fjárfesting. Hverfillinn er einfaldlega festur við góðan krana og skrúfað frá. Einn hverfill getur séð eldavélarhellu eða sjónvarpi fyrir raforku, eða lýst upp meðalheimilið.
Heildverzlun Stephan von Geyser & Co. h/f
Flott hugmynd. Hvað kostar svona hverfill?
Húsmæður athugið! Lífrænt Daldón – aðeins það bezta í pott yðar!
Stökkar flögur af hágæða "Daldón" natríum- og magnesíumbíkarbónatblöndu. Aðeins það bezta fyrir húsbóndann og fjölskylduna. Tilboðsverð aðeins í nokkra daga, 200 krónur hektógrammið. Látið ekki glepjast af ódýru salti, þegar hægt að að fá lífrænt Daldón.
Heildverzlun Stephan von Geyser & Co. h/f
Hömlur óskast. AVÁ.
Tapast hefur gríðarstór maður, sem ráðinn er á fiskiskipið »Fríða«, Hafnarfirði, heldur hærri en jeg. Ráðvandur finnandi skili honum á Ráðningarstofu Hafnarfjarðar, helst fyrir vertíð, gegn sanngjörnum fundarlaunum. Þ.
Fundizt hefir geysistór maður, ívið hærri en Þórður. Eigandi er beðinn um að vitja hans og fæst hann afhentur gegn fundargjaldi og borgunar þessarar auglýsingar. Að öðrum kosti verður hann notaður á Þorbjörgu RE.
K.
Myrkvunartjöld, myrkvunartjöld. Tilboð aðeins í kvöld.
Heildverzlun Stephan von Geyser & Co. h/f