Hér skal setja fram lærðar hendingar um vísindi, stjórnmál, listir og önnur hugðarefni upplýstra manna. Titlar skulu vera yfirgripsmiklir. Um hendinguna gilda sömu reglur og um bændaspeki.
Dæmi:
Um birtingarmyndir arfleifðar Jóns Sigurðssonar forseta í pólitískri orðræðu tengdri aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu
Jón væri bæði með og móti
en máské ekki' í Evruróti.
Hér er fjallað lítillega um áberandi gjaldfellingu íslenskra bókmenntagagnrýnenda á stjörnugjöf með ritdómum um nýjar bækur haustið 2011
Ekki er bókmenntagagnrýnin grimm:
Gefið að lágmarki stjörnur fimm.
Ofurlítil hugleiðing um forgengileik tilverunnar á þeim tímum er heilagleikinn ætti að umlykja alla heimsbyggðina og hamingjan að vera í hámarki.
Mandlan sem úr grautnum gekk,
gekk ey niður, ég fékk skrekk.
Lagt í munn ríkissaksóknarans Sigríðar J. Friðjónsdóttur sem þótti ekki nóg að aldraður maður sæti í fangelsi í tvö ár fyrir að selja hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir hrun, heldur fór fram á þyngingu refsingar:
Svona ansans ólánsdrengur
ætti að sitja í steini lengur.
Í orðastað fv. ráðuneytisstjórans og nv. tugthúslims:
Milljónanna virði var,
vatt mér inn á næsta bar.