Spurðu (í bundnu máli) og ég svara (í bundnu máli)...
Regla: Frumsamið helst, allavega ekki eitthvað dægurlag...
Er í gangi dauðans mikil drullu della,
Spurja menn af speki ella
er spurning þessi bara brella?
Margt ég veit og víst er svo að veit ég þetta.
Þú munt oní drullu detta
djöfull munt svo í þig skvetta.
Hefurðu smakkað holusteik?
Hefurðu farið oft í sleik?
Hefurðu vaðið höfgan reyk?
Hefurðu farið í skessuleik?
Billi:
Hefur það nú hent mig þar,
og hér en líka fram við bar,
ég ferskt vil núna fá mér loft.
það fer nú vart að gerast oft,
Viltu með mér vaka í nótt,
vaka á meðan húmið hljótt
leggst um lönd og sæ,
lifnar fjör í bæ,
viltu með mér vaka í nótt?
Hlebbi:
Ég skal með þér norpa í nótt
norpa á meðan skuggar hljótt
bíta land og bæ
brjóta frosin sæ.
Ég skal með þér norpa í nótt.
p.s. hér eftir breytast reglurnar sjá fyrsta póst.
Á sú hóra að harka,
sem hart finnur barn í sér sparka?
Hvar heyrast hljóð úr barka
jafn himnesk og hjá Bjarka?
Hvar er partý? hvar er bjór?
hvar er Ákavítið?
Finnst þér ég hér frekar mjór?
finnst þér haustið skrítið?
Bullustrokkur:
Til vændis skal oft vanda sig
er vösk þín kúla flengist.
Bjarki elskar bara þig
og bumbu þinni tengist.
Offari:
Etanólið er í hól
eins og sól í bítið.
Nú passar fól í fagran kjól
-furðu gjólar lítið.
Hví er lánið voða valt
og vitið burtu farið?
Ég spyr um lífið, alheim, allt,
áttu, kæri, svarið?
Heimskautafroskur
Llífið það er lottókúla
sem lýgur ekki meir.
Heimur, líf og flest hið fúla:
er 42.
Heimskautafroskur
Llífið það er lottókúla
sem lýgur ekki meir.
Heimur, líf og flest hið fúla:
er 42.
Glæsilegt. Takk fyrir greinargott svar.
Hve iðrar mörg líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka?
Hve iðrast að morgni íkonoklast
sem ásanna líkneski taka?
Hve eflast í trú sinni’ á alabast
þeir andar sem raunirnar þjaka?
Hver semur þessi furðu ljóð
hver er þessi skvaldrari
Er það pjakkur eða fljóð
hver er Skabbi skrumari
Víst ávall þeim vana halt
vertu hress og drekktu malt,
úti frostið, kvöldið kalt,
kannski Skabbi veistu allt?
Oooo hvað þetta er skemmtilegur þráður. Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Afsakið langa bið eftir svari... þurfti að hugsa mig lengi um..
Byrjum á Dolla litla... þ.e. mubla:
Svipað og dropar í djúpanna hafi
sem dansa á kviðbreiðri skötu.
Hér um bil seyðafjöld hrognkelsakafi
er hreyfast á þörunum flötu.
Allt eins og þorskur í þumlunga kafi
er þvælist um lúðunnar götu.