Hér getum við ausið af viskubrunni okkar, jafnt um tilgang lífsins ellegar tilgangsleysi ákveðinna hluta. Spekin má vera sjálfsprottin eða stolin, sönn eða login. Það er allt saman aukaatriði.
Ég mun ríða á vaðið.
Mér hefur það lærzt - að reiði vor ergelsi og langrækni eru að öllum líkindum innsprottin refsing sjálfsins fyrir óbilgirni vora í garð annarra.
Ennfremur - Brostu
Eitthvað að svekkja þig? Só? Það var ekki eins og þetta hafi bíttað neinum diff hvort eð er - fari það allt í fúlan pitt. Hatarar munu hata - haltu þínu striki og gerðu þitt stöff. Ströttaðu stoltur. Taktu á honum stóra þínum og bíttu heiminn í rassinn.
Og að lokum er hér lítill bútur eftir Káinn.
Þega kraftur orðsins þverr,
oss á lífsins brautum,
gefa á kjaftinn viljum vér,
vorum skuldunautum.
Þega kraftur orðsins þverr,
oss á lífsins brautum,
gefa á kjaftinn viljum vér,
vorum skuldunautum.
Hér þarf að gera bragarbót eður leiðréttingu.
Í bókinni Kviðlingar og kvæði með ljóðlist Kristjáns N. Júlíus sem Richard Beck tók saman og gefin var út af Bókfellsútgáfunni árið 1945, er vísan svona:
Ef að kraftur orðsins þver
á andans huldu brautum:
Gefa' á kjaftinn verðum vér
vorum skuldunautum.
Með vinsemd og virðingu;
Færeyingurinn
Puínadau!
Þakka þér Huxi! Ljómar upp
Leitaðu að hlutum til að vera þakklátur fyrir.
"Alltaf má á montið bæta." - Glúmur Angan
"Taktu til í herberginu þínu" - hvern hefði grunað hvað þetta er satt - og svo djúpt.
Eru einhver bein bein? Eða eru þau öll bogin?
Ætli Geysir kjósi í dag? Klórar súg í hattinum