Það GETUR EKKI GENGIÐ TIL LENGDAR að það sjeu svona fáránlega fáar myndir sem hægt erð að hlaða upp í kennileyti manns á Baggalútíu.......það verður að bjóða meiri möguleika.
Segið mjer ekki að Fegelein hafi numið allt myndasafnið á brott og flutt það heim til sín! Þá þurfum vjer nýgræðingarnir að elta hann og komast yfir gömlu myndirnar til að geta nýtt oss notkonarmöguleika þeirra aftur. Fegelein! Fegelein! FEGELEIN!!!!!!Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátriStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt erHrökklast aftur á bak og hrasar við
Nú hefurðu gleymt að taka lyfin þín, Salli minn.
hlewagastiR ef Þú hefur gleymt að taka lyfin sín verðu mið að minna Þann á það en það þarf að sjálfsögðu ekki að vera mitt verk.
Muna menn ekki eftir fjelagsriti mínu um það að íslenska þjóðin haldi að gleðipillur sjeu hið endanlega yfirvald? Hvernig væri að líta aðeins út fyrir landsteinana...........
Finnst fyndið og krúttlegt að Sannleikurinn standi í þeirri meiningu að einhver nenni að lesa félagsritin hans, hvað þá að muna eftir þeim
Það er rétt, Salli, gleðipillur leysa ekki allan heimsins vanda. Sjálfur hef ég fyrir löngu komist að því að hæfilegur kross af spítti og sóbríli er miklu effektífara.
hlewagastiR jeg trúi því einfaldlega alls ekki að fólk hjer haldi það að gleðipillur leysi engann vanda. Bara alls ekki.
Sannleikurinn, þú sérð að hlewagastiR var einungis að segja að gleðipillur leysi ekki ALLAN heimsins vanda. Við skulum ekki fara að missa niður buxur okkar.
Jeg get bara ekkert að því gert - jeg held einfaldlega að í baggalútíu séu gleðipillur hið endanlega yfirvald.
Jeg get bara ekkert að því gert - jeg held einfaldlega að í baggalútíu séu gleðipillur hið endanlega yfirvald.
Margur er með ilsig. þ.e. Margur heldur mig sig.
Í raunheimum hafa verið uppi ansi fyndnar og skemmtilegar hugmyndir um að gleðipillur eigi að leysa einhvern vanda. Jeg sá eitt sinn heimildarmynd þar sem fjallað var um málið og fólk spurt út í hluti eins og heimsendi og þá var mönnum tjáð að heimsendir yrði leystur með pillum......jeg leyfi mjer hins vegar að vera þeirrar skoðunar , að guðirnir hafi ákveðið að fresta heimsendi þar sem að Sleipnir hafi fengið hestaflensuna.