Eins og skáldið sagði: Dú jú læk læk? Há abát árabát?
Ég væri sko ekkert á móti því að hafa alkahóllæk í garðinum hjá mér. Reynir að byrgja lækinn áður en barnið dettur í'ða
Segðu. Þá fengi það nú fyrst einhverja bitastæða merkingu, kvæðið gamla:
Lækirnir skoppa, hjala og hoppa
Moraxella catarrhalis kemur alltaf sterk inn.
hmmmmmmmm........Moraxella........fara í Wikipedia og leita.......mmmmmm.........
bronkítis........sinuitis..........laryngitis.
Hvað er annars laryngitis? Áhugaverður notkunarmöguleiki sem hræðilegt sýklavopn , t.d. gegn færeyjingum........
Oh. laryngitis er bara barkabólga. Sem kemur síðan útaf örðum ástæðum. Veirusýkingu (örugglega sérstaklega rhinoveiru sem veldur kvefi)
Eða í kjölfar annara sjúkdóma.
Afhverju er ég að taka þátt í þessu.
þegir
samkjaftar
áhugavert Villimey. Af hverju ertu að taka þátt í þessu? Af því að þú eins og jeg veist jafn vel og jeg hversu berskjölduð vjer erum fyrir árás af því tagi sem kallast víst sýklavopnaárás......vjer Íslendingar. Þess vegna neyðumst við að mínu mati í raun að gjöra þetta.......rannsaka hluti á borð við hversu vel við getum varið okkur eða reitt oss á varnir annara þjóða ef við verðum fyrir sýklavopnaárás , hversu fróð við erum um sýkla osv.frv. burtséð frá öllu gysinu hjá mjer varðandi þetta með Færeyjar og allt það.......
Skellihlær
Verð nú að viðurkenna. Ég hef ENGAR áhyggjur af sýklavopna árás.
Jú annars, ég er viss um að einhver illskeyttur maður muni ráðast á okkur með hálsbólgu sýkli..
AAAAAAAAA ALLIR Í SKJÓL!!
Ég nenni ekki kjól núna, það er of kalt. Glottir eins og fífl
Já ok. þú meinar skjól, hver vill veita okkur Villimey skjól?
Villimey jeg sem betur fer ekki heldur þar sem að slíkar áhyggjur væru að mínu mati nær algjörlega tilgangslausar.
Þetta þarna þegar maður snýr músarhnöppunum við, það er að segja þegar hægri verður vinstri, þó ekkert sérnafn sé til á þessu viðbrigði, að mér óvitandi, þá var hér á árum áður í notkun vina á milli veira sú er þessu veldur, en ónýtt er nú til dags, þar eð maður getur nú þetta gert með smá axarsköftum í músaruppsetningarforritum þeim er fylgja tölvum nú.
Villimey hvernig er þetta ert þú ekki veiru - og sýklavopnasjerfræðingurinn okkar í Baggalútíu???
Mér hefur aldrei verið úthlutaður þeim titli.
En ég skal svosem taka það að mér.
Ég mun smíða þessi vopn fyrir hönd Baggalútíu. Ljómar upp
Villimey má taka að sér embætti svo lengi sem að dreifir ekki athygli hennar frá því að vera frilla konungs.