Það vottast hjer með að Ögmundur Jónasson hafi verið skýrður upp á nýtt og heiti nú Ögmundur óþekki.
Talið er að Spaugstofan hafi staðið á bak við skýrnina.
... skírnina.
... skurnina? Klórar súg í höfuðpaurnum
... skarnann?
Sannleikurinn um skírnina liggur nú fyrir. Er þá ekki rétt að lagfæra það og einnegi "skýrður"?
Ef menn eru skírðir þá er prestur sem gerir það með vatni og öllum stælunum, annars eru menn nefndir. Þannig er réttara að segja t.d að dýr, bangsar, dúkkur og bílar séu nefnd, ekki skírð. Ég þakka þeim sem hlýddu. Góðar stundir.
Það vottast hjer með að Ögmundur Jónasson hafi verið skýrður upp á nýtt og heiti nú Ögmundur óþekki.
Talið er að Spaugstofan hafi staðið á bak við skýrnina.
Hvernig var hann skýrður. Var teiknað ofan í útlínurnar á honum með svörtum tússi eða var einhver svo fórnfús að reyna að útskýra bullið í honum? Og af hverju skifti hann um nafn í leiðinni? Hver tók að sér að að skýra hann? Hver skýrði þér frá þessu? Hér er margt óskýrt og þarfnast nánari skýringa. Þú verður að vera skýrari í framsetningu svo að við þurfum ekki að fá skýringar frá sérstökum útskýrendum á því sem þú ert að reyna að skýra okkur frá.
Heitir hann þá núna Ögmundur Jóhannes? Klórar súg í höfuðpaurnum
Huksi jeg held að það hafi verið Fegelein sem skírði hann. Fegelein! Fegelein! FEGELEIN!!!!
Til hvers að skíra hann upp, - er hann ekki nógu flókinn fyrir?
Mjer finnst að það bráðvanti að ríkisstjórn vor og stjórnarandstaða verði skyrðar eins og forðum daga.........
Mjer finnst að það bráðvanti að ríkisstjórn vor og stjórnarandstaða verði skyrðar eins og forðum daga.........
Skrælingjar...?
mjer er spurn; eigið þjer þá við að skyra eigi ríkisstjórnarliða Skrælingja??