Eruð þið mörg?
Jafnvel mýmörg? Springur úr hlátri.
Velkomin.
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomið/velkominn/velkomna hjer í þetta athvarf fyrir grafalvarlegar umræður.
Setur á sig flugnanet
Er þetta helvíti komið á veraldarvefinn núna.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Spreyjar flugnaeitri um allt
Ekki þjáist mývargurinn nú af munnræpu, upphafsinnleggið hér er allt sem hann hefur haft til málanna að leggja. Borar í nefið
Tsk tsk. Fyrir ukkur óglögga fólkið, þá má benda á að það sést á þráðarheitinu að Mý er ein, og kvenkyns, sé farið eftir öllum venjulegum skilningi.
Nei, þetta getur þýtt að mýið sje mætt, þ.e. hvorugkyn.
Ekki þjáist mývargurinn nú af munnræpu, upphafsinnleggið hér er allt sem hann hefur haft til málanna að leggja. Borar í nefið
Rjett er það. Hinsvegar hafa nýliðamóttökuþræðir stundum orðið stórskemmtilegir þó upphafsinnlegg þeirra hafi jafnvel orðið eina innlegg viðkomandi nýliða á Gestapó Minnist langs nýliðamóttökuþráðar vegna hinnar konunnnar.
Mæli með að My fái svona skítagula mynd eins og Blöndungur er með. Þá verður hún/hann/það eins og Mý á mykjuskán.
Ég vil árétta að ég hefi fagurlega misturgula mynd. Nermal gæti hinsvegar, ef hann vill, gert sig ögn gulari með því að stinga kollinum í fjóshauginn.