Þann 18/12/09 klukkan 01:43 gerðist nokkuð merkur atburður sem sennilega fór framhjá öllum. En þá var sent inn innlegg númer EIN MILLJÓN.
Það má sjá hér og var það enginn annar en Valþjófur Vídalín sem sendi það inn.
Er það bara ég sem hef tekið eftir þessu eða er þetta ekkert svo merkilegt?
Alveg stórmerkilegt og athyglisgáfa þín er ekki síður stórmerkileg. Ljómar upp
Afar athyglisvert. Nú hefir Grágrímur skipað sér í fremstu röð fræðimanna nútímans. Býst við doðranti um fyrstu milljón innlegg Gestapósins fyrir næstu jól
Þetta er nú bara stórmerkilegt. Er þá ekki tilvalið fyrir fræðimenn að reikna út meðalfjölda innleggja á dag og meðalfjölda innleggja á hvern virkann Bagglýting?
Almennt held ég að talan 1.000.000 sé í sjálfu sér ekki merkileg. Þó að vísu hún sé lægsta talan sem hægt er að skrifa með 7 tölustöfum í arabíska tugakerfinu, og eigi sér sérstakt nafn; þá er hún talsvert ómerkilegri en t.d. 1729, sem er lægsta talan sem hægt er að skrifa sem summu af tveimur tölum í þriðja veldi á tvo mismunandi vegu.
Mér er ekki kunnugt um hversvegna milljónasta innleggið fór alveg framhjá Gestapóum, en það er hinsvegar verk, en ekki vandamál, að búa fljótlega til næsta merkisdag tengdan einhverjum merkilegum tölum.
Er þá komið innlegg númer 1.111.111 ?
1048576 er merkilegt tala. Hún er mega.
Enn virðist nokkuð langt í það. (Þ.e. í 1.111.111. innleggið. - Bl.) Síðan í desember virðast hafa verið skrifuð rúmlega 8500 innlegg.
Og, sem viðbót, þá ætlaði ég að athuga hvort hægt væri að grafa upp fyrsta innleggið. (Semsagt að leggjast í smá paleoinnleggjalógíu.) Það virðist hinsvegar ekki vera til. Brestur í óstöðvandi grát
égm tók þmátt mm´mmi þv´mimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? Potar í Grágrím með skítugri sleif
Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? Potar í Grágrím með skítugri sleif
Sko ef þú kíkir á hlekkinn í fyrsta innleggi þráðarins þá lýtur hann svona út
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1000000&highlight=#1000000
Talan á eftir "p="-inu er númer innleggsins í Gestapógagnameitrixxinu.
Merkilegt nokk ef maður svarar þræði getur maður séð númerið á innlegginu sem maður er að fara að senda inn, í "addresslínunni" á vafranum.
Fær nördasjokk.
Jahérna, [2 (í tuttugugasta veldi)]-sta innleggið er svo sannarlega merkilegur þröskuldur. Haf þökk HlégestuR, fyrir að halda því á lofti.
Hvernig í áranum sérðu fjölda innleggja ? Ertu með stolin leyniskjöl ?
Ertu óvinur ríkisins ? Potar í Grágrím með skítugri sleif
Sko ef þú kíkir á hlekkinn í fyrsta innleggi þráðarins þá lýtur hann svona út
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=1000000&highlight=#1000000
Talan á eftir "p="-inu er númer innleggsins í Gestapógagnameitrixxinu.
Merkilegt nokk ef maður svarar þræði getur maður séð númerið á innlegginu sem maður er að fara að senda inn, í "addresslínunni" á vafranum.
Fær nördasjokk.
Klórar sér í höfðinu
Hefuru ekkert að gera ?Glottir eins og fífl
Ekki rassgat eftir að ég vann "Síðastur að svara" þráðinn fyrir löngu síðan. Glottir eins og fífl