Já, pelíkanar. Líklega stærsta áhyggjuefni Baggalútíu um þessar mundir.
Eins og þið sjáið er ógnin sem stafar af þessum óargadýrum gífurleg. Þeir svífast einskis til að ná fram djöfullegum markmiðum sínum, og hlusta á engin rök. Ég legg til þess að við gerum tafarlaust áhlaup á alla þá staði þar sem Pelíkanar gætu leynst, framtíðaröryggi Baggalútíu er í húfi!
Hrökklast afturábak og hrasar við Sjer draug Áttar sig afar óvænt á að draugurinn er eigi draugur
Vjer bjóðum yður formlega velkominn til baka Ljómar upp. Þjer hafið að líkindum sett nýtt fjarverulengdarmet. Voru pelíkanar á vegum óvina ríkisins með yður í haldi ?
En nú að efninu, pelíkaninn á síðustu myndinni er augljóslega stórhættulegur og gæti greinilega gjöreytt öllum sjóher baggalútíska heimsveldisins verði eigi þegar í stað gripið í taumana. Leggjum vjer því til að lögð verði áhersla á kafbátahernað í komandi hernaðaraðgerðum því oss er eigi kunnugt um að til sjeu neðansjávarpelíkanar.
En hvað með kyndinguna hérna?
Á ekkert að laga það?
Mér sýnist þetta vera lítið mál, er ekki hundurinn á efstu myndinni að éta pelíkanan og byrjaður á hausnum?
Eða er það öfugt? Hrökklast aftur á bak og hrasar við Klórar sér í höfðinu
Það er greinilega ekki ónýtt að eiga njósnara eins og Hilmar til að leita uppi óvini ríkisins. Lýtur höfði af virðingu
Nú ríður á að nýta þessar upplýsingar til að leita óvininn allsstaðar uppi og gjöreyða honum.Stendur á öndinni af æsingi
Mér sýnist þetta vera lítið mál, er ekki hundurinn á efstu myndinni að éta pelíkanan og byrjaður á hausnum?
Eða er það öfugt? Hrökklast aftur á bak og hrasar við Klórar sér í höfðinu
Vandamálið er einmitt að það er öfugt. Þarna kann að vera komin skýringin á dularfullri fækkun varðhunda forsetaembættis Baggalútíu undanfarnar vikur.
Fölnar upp
Fölnar niður
Þetta eru hræðilegar fréttir. Hverjar meturðu líkurnar á að þessi fiðurfénaður muni gera árás á Baggalútíska heimsveldið?
En hvað með kyndinguna hérna?
Á ekkert að laga það?
Gamli, það er hún kyndingin. Vertu svo ekki altaf að trufla starfsfólkið með svona leiðinda spurningum.
Voru ekki pelíkanarnir búnir að ræna einni pennaverksñiðju?
Pjetur skrapp í Kaubfjelagið til að kaupa nagla og skrúfur. Kemur væntanlega aftur eftir mat.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Drottinn minn dýri! Mikið er ég fegin að fá þessar fregnir. Ég var einmitt að fóðra þessi kvikindi hérna um daginn. Taldi þau vera algjörlega meinlaus.
Eru þessi illfygli svo stór að þau geti gleypt hann Blesa minn í heilu lagi? Hleður hólkinn
Útdeilir eintökum af heimildarmyndinni Pelíkaninn stuttlegi (e. The Pelican Brief)
Og ég sem keypti pela í kanalandinu........
Leggst í rannsóknarvinnu og horfir á Pelikanann stuttlega og les í framhaldinu allar Rasmus Klump bækurna. Þetta er svakaleg kvikindi og greinilega ekki nóg að stunda kafbátahernað sbr. Rasmus Kluppur á sjó bók nr. 24, þar dregur Peli upp úr gogg sínum heilan kafbát.
Bara eitt kremkex í skálinni, þetta er hneyksli!