Fyrir nokkrum árum síðan, jafnvel lengur eða skemur þá ætlaði ég mér að gerast Baggalútskona. Frestunarárátta eða gleymzka skiptist á að koma í heimsókn og brátt gleymdi ég því að ég ætlaði að kynnast Baggalúti nánar. Kannski ófyrirgefanlegt?
Síðan fór að óma úr útvarpinu jólalögin Baggalúts og ég minntist þess sem ég hafði heitið mér fyrir löngu....og svo gleymdist það enn og aftur Glottir eins og fífl
Í kveld þá var ég andvaka og ég var farin að vafra um líklegar og ólíklegar síður þegar alt í einu mundi ég eftir Baggalúti og heitinu mínu. Ég greip áminninguna meðan hún var sem ferzkust og skráði mig og ég er nú baggalútsverji? Hvað nefna menn sig hér sem hingað koma? Starir þegjandi út í loftið
En sátt er ég í það minnzta, þetta hófzt! xT
Vertu velkomin Hollí hú!
Það er svo mikill hávaði á göngunum hérna að maður heyrir ekki sínar eigin hugsanir. Stafir, hækjur og önnur stoðtæki smella svo á dúknum að maður getur hreinlega ekki sofið.
Þú átt ekki að sofa núna heldur gamli, það er morgunmatur!
...Hvað nefna menn sig hér sem hingað koma? Starir þegjandi út í loftið ...
Þú myndir vera orðin Bagglýtingur og vertu velkomin í þann hóp. Fagnar heil ósköp Ertu búin að bóka tíma í myndatöku? Mér finnst að þú eigir að vera græn, allt gáfaða og fallega fólkið er grænt!
hófst var aldrei með z
Stoxeyri hef ég séð skrifaða svo í 17. aldar texta.
Velkomin, en þó með fyrirvara um að þú íslenskir nafnið þitt og færð þér Hvæsabláa mynd !
Velkomin, en þó með fyrirvara um að þú íslenskir nafnið þitt og færð þér Hvæsabláa mynd !
Þetta heitir nú gay-blár.
Sæl. Ertu í lagi?
Velkomin. Fáðu þér sæti og láttu eins og þú sért heima hjá þér.
Ég er agalega sátt við þessa tilögu þína Anna Panna um græna litinn, ég samþykki þá tillögu. Að íslenzka nafn mitt kemur líka sterklega til greina. Gef mér aðeins tækifæri til að rata um króka Gestapós.
Hófzt var síðan skrifað með z jú, orð sem enduðu á st voru gjarnan skrifuð með z, ásamt fleiru. Ég vísa í http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=192 því til stuðnings sem jafnframt er áhugaverður lestur.
Ég þakka annars góðar móttökur og efast ekki um að veran hér verði áhugaverð
bíður eftir að hlebbi leiðrétti misskilning Hollíar í löngu og vel rökstuddu máli.
Mikið væri nú gaman ef einhver gæti leyzt hina miklu ráðgátu notkunar z í mál okkar áður en það var fellt út. Ef Hlebbi er svo fróður, þá bíð ég nú líka spennt. Ljómar upp
Þetta er engin ráðgáta. Z var skrifuð þar sem framburður er s en stofninn er ds eða ts, og jafnvel ðs.
Dæmi: Hundsa verður hunza, en er núna skrifað hunsa.
Verð er stofninn í verslun, var því skrifað verzlun.
Betra er stofn í best, það er því skrifað bezt ef z er notuð.
Sæl. Ertu í lagi?
Halló... Á ekki að svara manni?
Halló jú fyrirgefðu. Nú veit ég ekki hver skilgreining þín sé á því að vera í lagi. Ég verð því að segja að ég tel mig ágætlega gangfæra.
bíður eftir að hlebbi leiðrétti misskilning Hollíar í löngu og vel rökstuddu máli.
Punktur tekinn. Glottir eins og fífl