Jæja krúttmonsurnar mínar,
Mér reiknast svo til að tæpt hálft ár sé síðan ég hélt síðast Þarfaþing. Það er auðvitað ótækt. Einnig eru ákveðnir Gestapóar á landinu sem oftast nær eru það ekki orðið, og því er tilvalið að nýta tækifærið til að hella viðkomandi blindfulla (því téðir Gestapóar eru vitaskuld stakir bindindismenn öðru jafna).
Það væri freistandi að halda áramótaþarfaþing ef ég væri ekki upptekinn þá, en svo er víst ekki (ég er sumsé ekki ekki upptekinn). Nýársþarfaþing skal það þá heldur vera, en þar sem ég er líka bókaður á sjálfan nýársdag verður 2. janúar að duga.
Sumsé, þarfaþing verður sett kl. 20:00 þann 2. janúar 2010. Þeir sem ekki vita hvar þinghald fer fram mega senda mér einkapóst til að grennslast fyrir um það.
Hlakka til að sjá ykkur - að því gefnu að ég verði ekki blindur, auðvitað.
Ég er því miður bókaður annarstaðar annan jan.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það kemur ekki til mála að vjer látum sjá oss á svona samkundu, það gerum vjer aldrei vegna hættu á aðgerðum óvina ríkisins. Hinsvegar gæti farið svo að raunheimaleikari vor ljeti sjá sig - en þá hugsanlega ekki fyrr en nokkuð er liðið á kvöldið.
Ég hef einnig verið bókaður í annað, þó varla það sama og Offari.
Er það nú alveg öruggt ? Offari tók nefnilega eigi fram í hvað hann er bókaður. Það er afar grunsamlegt að strax skuli koma fram tveir Gestapóar sem eru bókaðir í eitthvað.
Það gæti vel farið svo að ég mæti, ef það verður runnið af mér.
Líkurnar á mætingu af minni hálfu eru 35%.
Líkurnar á því að ég mæti ekki eru 50%.
Það verða að teljast góðar líkur á að ég mæti.
Ég verð því miður að tilkynna að þrátt fyrir að vera hvergi bókaður umrætt kvöld þá mun ég ekki láta undan þeim hvötum sem þrýsta á að ég mæti á þingið. Veldur því meðal annars það að þingleiðin er nokkuð löng, hrossin ójárnuð og gönguskíðaleiði á hálendinu óvíst.
Langar að kíkja en er að vinna daginn eftir... ég sé til.
Ég reyni endilega að láta sjá mig.
Það gerist því miður ekki, þar sem ég er allt of langt í burtu.
Góða skemmtun.
Það er sorglegt að þurfa að segja að ég er því miður bókaður og get því ekki mætt. Eins og mig langar. Fyrsti lausi dagur þessarar jólavertíðar er á mánudaginn. AF HVERJU ÞURFA ALLIR AÐ HITTAST Á ÞESSUM ÁRSTÍMA??? JÓLAFRÍIÐ VERÐUR EKKI AFSLAPPANDI HELDUR KVÖÐ OG MENN KOMA ÚTKEYRÐIR TIL VINNU EFTIR JÓLIN (þ.e.a.s. þeir sem á annað borð hafa vinnu)

Nöldrari.

Röflari!

Fýlupúki.

Leiðindagaur!