Það er alltaf þörf á litadeilum - svo lengi sem niðurstaðan verður sú að blátt er æðra.
Orð!
Í fyrsta ertu lillablár Hvæsi. Í annan stað, er ég brún eða gul? Og er enginn með mér í liði?
Jú, Hugfreður.
Og Skabbi? Hvað með Blöndung?
Já, ég hef aldrei vitað hvernig ég er á litinn. Enda pæli ég voða lítið í því. Ég held annars að litagorgeirinn í fólki standi í réttu hlutfalli við ljós- (einfald-)leika litarins.
En velkomin í gulgrábrúna hópinn! Það er langbesti liturinn.
Í fyrsta ertu lillablár Hvæsi. Í annan stað, er ég brún eða gul? Og er enginn með mér í liði?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Það tilkynnist hjer með opinberlega að allt er vænt sem vel er grænt Ljómar upp í fagurgrænum bjarma frá nálægum kjarnaofni.
(svo á reyndar eftir að koma í ljós hvort nýliði þessi verður hjer áfram eða hvort þessar litadeilur reynast vera óþarfar) Glottir eins og fífl
Ég er komin til að vera! Og hananú! Ljómar upp
Ég er búin að senda Enter póst með mynd og þar bað ég hann vinsamlegast um að velja einhvern fallegan lit. Núna er bara að bíða eftir árans myndinni, ég er orðin þreytt á því að vera apaköttur! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
læðist aftur inn á sviðið Ég er ekkert svona reið í alvörunni sko. Borðar mandarínu
Velkomin pæja. Láttu mig vita ef þessir pervertar verða of ágengir.
Það þarf auðvitað ekkert að ræða það hvaða litur er bestur. Blámenn eru æðstir.
Sveiflar blámannagengjamerki
Velkomin pæja. Láttu mig vita ef þessir pervertar verða of ágengir.
Það þarf auðvitað ekkert að ræða það hvaða litur er bestur. Blámenn eru æðstir.
Sveiflar blámannagengjamerki
Takk fyrir það! Ég hef þig í huga ef sakleysi mínu verður ógnað.
Vegna krónísks netleysis, andleysis og vitleysis þá hef ég ekki séð mér fært að hrella ykkur upp á síðkastið. Hefst nú skítkastið! Nei, allt í plati.
Aparnir í Sædýrasafninu grýttu skít í gesti og gangandi. Og þar sem þú ert ennþá api þá kemur þessi hótun bara ekkert á óvart.
Spennir upp regnhlífina
Sást ekk' uppá síðkastið,
sæta litla pæja.
Skal nú hefja skítkastið,
SKÁL ég fer að hlæja.
Æ, bara smá svefngalsaleir, þetta rímaði svo fallega! Ég held annars að ég hafi gleymt að bjóða þig velkomna og geri það hér með. Gefur Pí-unni tvo aukastafi í viðbót í innflutningsgjöf