Gott að þú ert stelpa það er allt of mikið af karlpungum hér.
Sjálfur heiti ég Upprifinn og er að því er mér er sagt aðaltöffarinn á gestapó.
Ég er einmitt mjög sátt við að vera stelpa. Gaman að hitta þig Upprifinn!
Velkomin.
Ég hlakka til að sjá hvað leynist á baka við apakattarásjónuna sem þú felst á bak við núna.Reynir að gægjast
Vjer vorum allt í einu að átta oss á að þjer heitið skemmtilega ruglingslegu nafni Ljómar upp. Þegar listinn yfir innipúka er skoðaður er nefnilega illmögulegt að sjá hvort inni er einn gestur sem heitir 3,14 eða tveir gestir sem heita 3 og 14 því það er komma milli nafnanna í innipúkalistanum Ljómar upp og íhugar að stofna alteralteregóin 3 og 14 og jafnvel 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 9 (alls 10 nöfn) og 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 (eitt nafn) líka.
Horfir með Georgs Bjarnfreðar svipnum sínum á þennan nýliða
Kemur með langt prik og potar laust í þessa skrýtnu veru
Í fyrsta lagi skaltu ekki trúa fíflinu honum Uppa, það er ÉG sem er mesti töffarinn hér.
Í annan stað, hverra manna ertu ?
Og í þriðja lagi, hvað tekuru í bekk ?
Já og í fjórða lagi skaltu breyta titlinum á þessum þræði, hann er villandi.
Það er dagur, ekki kvöld !
Kveinkar sér örlítið undan potinu af því að prikið var beitt
Starir til baka á Hvæsa með sínum besta Georgs Bjarnfreðarsvip
Viltu kannski að það sé potað í þig líka? Ég ætla reyndar ekki að gera það af því að ég er vel og vandlega uppalin. Gefur Hvæsa stórt faðmlag
Mikið er gaman að hitta þig! Ljómar upp Og svona til að svara spurningum þínum þá er ég af konunglegum ættum en læt það ekkert stíga mér til höfuðs, allavega ekkert að ráði, ég tek 5. bekk og það er kvöld hjá mér svo að ég veit ekki hvað þú ert að tala um.
Ja, góða kvöldið, vildi ég sagt hafa!!!
Gaman að kynnast þér! xT
Velkomin.
Ég hlakka til að sjá hvað leynist á baka við apakattarásjónuna sem þú felst á bak við núna.Reynir að gægjast
Þakka þér fyrir Golíat. Ég neyðist víst til að vera apaskrípi í bili þar sem það er ógurlega lítið úrval af myndum fyrir kvenþjóðina. Þetta verður ef til vill jólapakki til þín.
Hvurnig beygjist nafnið þitt?
3,14
3,14
3,141
3,145
?

Ef þjer viljið nota aðra mynd að eigin vali er hægt að hafa samband við hæstvirtan Enter og senda honum myndina.

Já, ég þarf að vinna í þessu. Ég get ekki verið apaköttur til lengdar!
Hvurnig beygjist nafnið þitt?
3,14
3,14
3,141
3,145
?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ég var einu sinni bifreiðareigandi. Ljómar upp
Ég var einu sinni bifreiðareigandi. Ljómar upp
Tímavjelarþjófur ! Faldirðu kannski tímavjelina í umræddri bifreið ?
Mig rámar í þessa tímavél.
Ég man samt ekki hvar hún er. Klórar sér í höfðinu
En ég man að einhverstaðar er hún.. svo mikið veit ég.
Velkomin, frú Pí.
Kveðja, herra Pó.
Ég púa ekki á þessa kveðju! Ljómar upp
Velkomnir allir þrír og rétt rúmlega það.
Þakka þér fyrir það. Segðu mér, mæliru með því að vera grænn?
Velkomin, frú Pí.
Kveðja, herra Pó.
Ég púa ekki á þessa kveðju! Ljómar upp
Ætli Ólafur pá sje nokkuð hjer ? Glottir eins og fífl