Ekki er hann í messu?
Er hann í Perlunni, hún ku fylgja Reykjavík suður.
Ekki í kirkju, ekki í Perlunni.
Ekki á spítala.
Er hann á Umferðarmiðstöðini?
Nei, en þettta er góð tilgáta.
Í flugstöðvarbyggingunni á Reykjavíkurflugvelli.
Nei, hann er ekki þar.
Hefur þessi staður eitthvað með almenningssamgöngur að gera?
Já.
Þá gæti hann verið á Hlemmi.
Rétt hjá Fergesja,maðurinn er á Hlemmi og búinn að vera allan tímann.
Og maðurinn er farinn þaðan.
Gott að grey karlinn er fundinn, og þar sannaðist að það er ekkert auðveldara að finna hann í Reykjavík heldur en á Merkúríusi.
(reyndar hefði karlanginn haft kosningarétt í Reykjavík norður.)
En Fergesji, er maðurinn þinn staddur á Íslandi?
Hve ótrúlegt, sem það kann að virðast vera, þá er karlinn í Reykjavík staddur.
Ég leitaði mér heimilda á vef Alþingis, og sá ekki betur en að skiptingin milli kjördæma væri ca um Elliðaár. En er maðurinn nú staddur í Breiðholti?