VÁ! Þrjár blaðsíður af busun...Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Já, þetta er orðin lengsta og skemmtilegasta nýliðamóttaka/busun hjer í langan tíma Ljómar upp. Megi þetta halda svona áfram lengi enn.
Ölvun er engin afsökun fyrir stafsetningarvillum. Það tekur bara lengri tíma að skrifa innleggin.
Já - hafa má í huga að hjá mörgum (flestum ?) hjer er hlutfallið villufjöldi/áfengismagn ekki fasti heldur fer þetta hlutfall lækkandi með vaxandi magni áfengis. Sama gildir um hlutfallið innleggsritunartími/áfengismagn, það fer venjulega lækkandi með vaxandi áfengismagni.
Vr ég búinn að segja hæ við þig, núrgis?
Af hverju eru engir hástafir í nafninfu þínu?
var ég búinn að þiggja kötsúpu vffrá þér?
Getur þú svarað mér af hverju ég er of fullur?
Hvaða mistök gerði ég í kvölsd?
Línbergur Leiðólfsson 27/9/09 04:09
Vr ég búinn að segja hæ við þig, núrgis?
Af hverju eru engir hástafir í nafninfu þínu?
var ég búinn að þiggja kötsúpu vffrá þér?
Getur þú svarað mér af hverju ég er of fullur?
Hvaða mistök gerði ég í kvölsd?
ég kann ekki að gera svona kvót ramma eins og þið hin gerið svo þetta verður að duga.
Já, þú varst búinn að segja hæ við mig. Takk fyrir það.
Það eru engir hástafir í nafninu mínu vegna þess að nafnið mitt er speglun á raunverulega nafninu mínu sem ég svara í daglegu lífi. Þar af leiðandi byrjar nafnið mitt á síðasta staf raunverulega nafns míns sem er lágstafur. Ég hef prófað að rita nafn mitt svo; núrgiS, en það virtist ekki alveg vera að virka. Ég gæti prófað að rita viðurnefnið mitt (sem reyndar er fengið í barnæsku) með hásteflingum, en þá þyrfti ég að fara leita að fonti og ég hreinlega bara nenni því ekki. Annars var ég að semja ljóð bara núna í laugardagsnótt/sunnudagsmorgunnohsjittégverðaðlæraídag rauðvínsþokunni.
Ef þig langar í kjötsúpu þá verður þú að leggja inn beiðni hjá ritaranum mínum emailið hans er tonyblair@hotmail.com
Þú ert svona fullur af því þú drakkst of mikið.
Þú gerðir þau mistök að drekka of mikið.
bestu kveðjur frá head and shoulders
NÚRGIS
Hæ, núrgiS! Alltaf gaman þegar ný bytta bætist í hóp okkar næturgalta & gyltna. xT
Vertu velkomin, núrgis og til hamingju með fallega mynd. Ljómar upp
Gleður mig að kynnast yður, Herbjörn. fliss fliss. (kann ekki að gera svona krókódíla sviga eins og þið hin.)
Gleður mig að kynnast yður, Herbjörn. fliss fliss. (kann ekki að gera svona krókódíla sviga eins og þið hin.)
Gaman að kynnast þér líka, núrgis. Til þess að gera svona kvót ramma eins og þú kallar það, þá smellir þú bara á Vitna í í innleggi þess. sem þú vilt vitna í.
Svo getur þú prófað sviðslýsingar og sértákn, sem eru hægra megin á síðunni þegar þú ert að skrifa innlegg. Ljómar upp
Svo getur þú skrifað eigin sviðslýsingu með því að smella á Svið fyrir neðan gluggann, sem þú skrifar í. Þegar þú ert búin að skrifa sviðslýsinguna, smellir þú aftur á Svið og sviðslýsingin lokast og birtist svo með grænu letri í innlegginu.
Einfalt, ekki satt? Bíður eftir að núrgis skrifi innlegg með tilvitnunum og sviðslýsingum
Þú átt bara eftir að kenna henni sultugerð. Starir þegjandi út í loftið
xT
xTxT
Leggur blessun sína yfir samkunduna
Dásamlegt. Blátt áfram yndislegt. En hvað þið eruð öll falleg.
Sjitt hvað mig klæjar í nefið.
Sjitt hvað mig klæjar í nefið.
Ertu með tunguhaft? Aðrir kettir sem ég þekki geta sleikt á sér andlitið frá nefbroddi að augnbotnum og hljóðhimnu.
Nei ég næ bara ekki að klóra nægilega vel með tungunni.