Það er ekki lengur kúl að stofna fyrirtæki sem heita eitthvað Group. Nú eru kaupfélög málið. Hér með er því boðað til stofnfundar Kaupfélags Baggalútíu (KauBa). Markmið félagsins er að kaupa afurðir félagsmanna á hæsta mögulega verði en útvega þeim aðföng og neysluvarning á lægsta mögulega verði. Hagnaði af starfseminni verið varið að hluta til þess að efla sjálft kaupfélagið en að hluta verði hann greiddur út til félagsmanna og skiptist þá jafn á milli þeirra, óháð stofnfjáreign.
Sömuleiðis hafa allir félagsmenn jafnan atkvæðisrétt á fundum félagsins, óháð stofnfjáreign. Til að verða félagsmaður þarf að leggja fram stofnfé sem nemur a.m.k. einu ærglidi og má það vera í varningi jafnt sem reiðufé.
Kaupfélagið styður heilbrigða viðskiptahætti og tekur ekki debet- eða kreditkort, nema einhver eigi enn SamKort - þau eru tekin gild.
Dagskrá stofnfundar er sem hér segir:
1) Kjósa kaupfélagsstjóra sem jafnframt gegni hlutverki stjórnar og stjórnarformanns. (Því verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman.)
2) Önnur mál.
Kaupféalgsrekstur hefur oft verið spyrtur saman við Framsóknarflokkinn en svo þarf þó ekki að vera. Á blómaskeiði Samvinnuhreyfingarinnar stjýðu ´haldsmenn kaupfélaginu á Hellu, kratar kaupélögunum í Hafnarfirði og á Siglufirði en kommúnistar kaupfélögunum í Reykjavík og í Neskaupstað. Flokkur mannsins stóð líka fyrir litlu kaupfélagi utan alfaraleiðar en það fór afar leynt, svo leynt að enginn átti viðskipti við það.
Ég segi hér með stofnfund þennan settan og lýsi eftir frambjóðendum í stöðu kaupfélagsstjóra. Ég mun stýra hér umræðum og hlutlaus fundarstjóri er því ekki kjörgengur til starfans. Auk þess eru þess engin dæmi að konungar séu jafnframt kaupfélagsstjórar. Þegar mér sýnist mælendaskrá vera tæmd mun ég svo efna til kosninga milli þeirra sem kallaðir hafa verið og verður það tilkynnt sérstaklega.
F.h. undirbúningsnefndar að stofnun KauBa
Hlebbi
Aldrei skal ég gefa kost á mér sem Kaupfélagsstjóri.
Sumir fyrrverandi kaupfélagsstjórar sem ég þekki er samt skemmtilegir með víni svo ég mæli alveg eins með djobbinu.
Gerir formlega tillögu að Golíat í djobbið
Ljómar upp
Ég væri fínn skoðar bréfið aftur og les upphátt Kaup-fjé-lags-stjó-ri
Hvar sækir maður um ?
Hvar sækir maður um ?
Það er litið á þetta sem formlega umsókn. Svo lengi sem Vlad kemst ekki í málið er fjórrits, stimpla, innsigla og tímavjela ekki krafist.
Ég mæli sterklega með Útvarpsstjóra í djobbið. Hann myndi alltaf passa upp á að hafa nóg af gúmmískóm, sem er algjört möst í öllum kuffélögum.
Hagnaði af starfseminni verið varið að hluta til þess að efla sjálft kaupfélagið en að hluta verði hann greiddur út til félagsmanna og skiptist þá jafn á milli þeirra, óháð stofnfjáreign.
Hverskonar krata-kaupfélag er þetta? Það sér hver maður að öll aukasjálfin gleypa allan hagnaðinn áður en eitthvað verður til skiptana fyrir okkur alvörufólkið. Á ekki að skipta hagnaðinum eftir innleggjum og stærð viðskipta félagsmanna (í péningavirði) við kaupfélagið?
Verður ekki örugglega kaffihorn?
Verður ekki örugglega kaffihorn?
Og reykfyllt viskí-lomberbakherbergi...?
Hvar sækir maður um ?
Það er litið á þetta sem formlega umsókn. Svo lengi sem Vlad kemst ekki í málið er fjórrits, stimpla, innsigla og tímavjela ekki krafist.
Hrökklast afturábak og hrasar við
En þá er nær öruggt að stofnun kaupfjelagsins ásamt því er slíkri framkvæmd fylgir teldist ógild sökum formgalla.
En eru ekki fleiri embætti þarna en embætti kaupfjelagsstjóra ? Það hlýtur t.d. að þurfa stjórn yfir kaupfjelagið sem óháð öllum hagsmunum myndi svo sjá um smámál á borð við að semja um t.d. laun kaupfjelagsstjóra og hefði stjórnin síðan sjálf laun sem væru ákveðið hlutfall af launum kaupfjelagsstjóra. Slíkt fyrirkomulag tryggir best að kaupfjelagsstjórinn njóti óskoraðs stuðnings stjórnar. Vjer teljum þetta betra fyrirkomulag en að kaupfjelagsstjórinn sjái sjálfur um þetta.
Jæja, þá er Vlad kominn í málið og allar fyrrgreindar undanþágur úr gildi fallnar.
Ég legg til að Vlad verði gerður að stjórn KauBa. Ég vara eindregið við fjölskipaðri stjórn. Í því felst lýðræði - sem er hættulegt.
Ég legg hér með fram jafnvirði 300 ærgilda í stofnfé.
Þarna sýndirðu sanna samvinnuhugsjón í verki, Herbjörn.
Mér sýnist aðeins einn hafa gefið kost á sér sem Kaupfélagsstjóri að svo stöddu. Tilnefningar eru ekkitaldar með, menn verða að gefa kost á sér sjálfir. Frestur verður framlengdur þangað til næg framboð hafa borist. Mér hefur t.a.m. borist til eyrna að Offari undirbúi umsókn og e.t.v. fleiri.
Ég skora hér með á Offara að sækja um starf kaupfélagsstjóra. Hann er gegnheill framsóknarmaður og hefur því allt til brunns að bera, sem þarf til þess að stýra hinu nýja kaupfélagi. Ljómar upp
Sendir inn umsókn Ég er allveg til í smá bissness, Er með góð sambönd við rétta aðila og get fengið fullt af meðmælum. Fær sér Tópas til að fela áfengislyktina
Ég hækka hér með stofnframlag mitt um 200 ærgildi og vona að Offari fá stöðuna. xT
Nei í fæðingarbær Offara setja þeir ölllllllllllll kaupfélög á hausinn.
Ég legg fram 2 hænur, látnar og frosnar og kassa af prinspóló í framboðssjóð Offara.