Kæru vinir. Þetta er skoðanakönnun. Hvernig lízt fólki á að endurvekja Póamót* á kaffihúsinu Lystinni? Er sumardoðinn nokkuð of mikill? Ræðið endilega vilja og hentuga daga. Þirðjudagar voru dagarnir fyrrum.
---
* Orðið 'hittingur' hefur alltaf valið mér velgju.
Ég er alveg til í það. Það er meira að segja hamingjustund þarna frá fjögur til átta skilst mér. Gleði gleði.
Póamót? Er það í stí við Vinamót, sem er það sem Orðanefnd Skýrslutæknifélagsins kallar Sviplu?
Aldrey að vita...
... eftir þann 23. nk.
Ef maður getur gengið að því nokkurn veginn vísu að einhverjir láti sjá sig, þá er það afar líklegt að ég geri það líka...
Ef hægt væri að ganga að einhverjum Póum á vísum stað þá mundi það þýða að höfuðborgarferðir yrðu stilltar eftir þannig hittingum* eftir því sem hægt væri.
*mér finnst hittingur flott orð.
Aldrei að vita nema maður kasti kveðju á mannskapinn...
Hvar er umræddur mótsstaður?
Við Laugaveg 73. Rautt hús.
Það er aldrei að vita nema ég verði orðinn nægilega félagslyndur næstkomandi þriðjudag til að þora að mæta. Afsakið að ég get ekki verið ákveðnari en svo - ég vil bara ekki að lofa upp í ermina á mér.

Þarfi, hefuru prufað að lofa uppí ermina á öðrum ?
það er miklu auðveldara, og stundum áhugaverðara...
Ef það verður svona hittingur í september eru líkurnar á að ég sjáist... töluverðar... og aukast með hverjum degi. Ljómar upp... og vonar að einhverjir póar geri það líka... allavega smá...
ÉG mæti ekki ef Skabbi mætir!Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
ÉG mæti ekki ef Skabbi mætir!Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Sömuleiðis... einhver verður að passa Álf og Elg...
Það má athuga þetta.