Enginn er verri þó hann sé fundur nema kindarlegur sé þó síður sé.
Síðan er alltaf best, rétt hjá þér.
Réttin er síðan á Síðunni, ekki rétt?
Saung ekki Thompson Twins lag um þetta? Thorn In My Side?
Var það ekki: Hún er svo sæt?
Er verið að ætlast til þess að ég sinni kaffiveitingum vegna þess að ég er af óræðu kyni?
Ha, ertu óræð tala?
Jahá, persónur og gestapóar sem aðrir eru sumsé talnagildi í þínum huga. Ég veit hvað klukkan slær. Lítur á vasaúrið með fjarsýnissvip
Ég veit hvað klukkan slær.
Þetta gæti jafngilt yfirlýsingu um að þjer eigið ei tímavjel en fremur finnst oss þó sem hjer sje rætt um sláttuvjel en klukku.
Ég rugla ekki, og hef aldrei á ævinni ruglað saman sláttuvélum og vasaúrum. Eru þjer herra forseti sumsé að segja mér að bletturinn í garði yðar sé sleginn með einhverju öðru en orfi og ljá? Krossleggur hendur og hallar undir flatt
Ort um ljá, er það ljóðabók eftir Jón Jón Jónsson? Það var einhvern tíman slegist um þá bók í garðinum heima.
Nei, áin Ljá er í Dölunum.
Eru það dalirnir í Svíþjóð. Þaðan sem Dalahestarnir eru ættaðir.
Áttu við Hvammskynið?
Hvaðan eru Hvammshrossin ættuð segirðu? Já, þau eru nú frá mér.
Ha, hvalahross? Er það ný tegund af neðansjávarhestum?