Mér var að detta í hug að hér geti fólk misskilið hvort annað í friði, t.d. með því að misskilja einhvern þann er á undan kemur og þá sérstaklega þann sem er næstur á undan. Það er varla hægt að misskilja tilganginn með þessum þræði, þetta segir sig sjálft.
Ég skil. Prófum þetta þá ...
Ég held ég sé eitthvað að misskilja Skabba núna ...
Þarfi ég trúi ekki að þú sért að segja að Skabbi sé það vitlaus að þú misskiljir hann alltaf.
Þarfi ég trúi ekki að þú sért að segja að Skabbi sé það vitlaus að þú misskiljir hann alltaf.
Ég sagði aldrei að Skabbi væri vitlaus!
Hvernig er hægt að misskilja ... ?
Misskilur Offara, Grágrím, Skabba og Þarfa
Ef ég er ekki að misskilja þá misskilur Línbergur ekki beint Offara, en ég skil vel að hann misskilji mig, þar sem ég er dæmdur til að misskiljast. Kaupir sér misskilvindu
Ég er alls ekkert misskilin manneskja. flautar
Er einhver skilmysingur í gangi hér?
Ég skil nú bara ekkert í því.
Hrasar aftur á bak og hrökklast við
Ég er alls ekkert misskilin manneskja. flautar
Ljómar uppVarstu að flauta á mig?
Það getur ekki verið. Sko, sú var að flauta, svo sá færi frá, sem sú flautaði á og þú tókst það til þín.
Ég að misskilja? Nei sko ekki.
Þetta er þá allt saman bara rangur misskilningur...