Vjer höfum gert þá athyglisverðu uppgötvun að gestir hjer geta átt innlegg sem dagsett eru a.m.k. einni mínútu eftir að þeir voru síðast á ferli. Gæti þetta bent til að notkun tímavjela sje útbreiddari en vjer höfum talið, að Gestapóið sje undir sterkari áhrifum skrumgleypis en talið hefur verið eða að áhrifa yfirvofandi sumarlokunar sje á einhvern hátt farið að gæta í tímasamfellu Gestapósins sem við það verður ósamfelld. Einnig hefur verið nefnd í vor eyru sú skýring að um kunni að vera að ræða sk. 'bögga' í Gestapóinu en því neitum vjer alfarið að trúa enda Gestapóið óskeikult.
Skrumgleypir finnst oss því líklegasta skýringin á þessu Hrökklast afturábak og hrasar við Fölnar upp.
Þurfum við þá ekki að binda Skabba einhverstaðar niður svo hann fari ekki að snuðra eins og síðast?
Það er a.m.k. stórhættulegt að hleypa honum nálægt klósetti, sjerstaklega ef vatnsborðið í klósettinu hallast án þess að skýringin á því sje augljós.
Þá þurfum við að finna svona þvagpoka fyrir hann. Það gengur ekki að maðurinn sé mígandi utan í öll hús á virkum dögum líka.
Mjög góð lausn. Setjum þvagpoka á Skabba og þá hætta að koma innlegg einni mínútu eftir að fólk er á ferli.
Ljómar upp Málið leyst.
Kemur inn á harðaspretti með skjalastafla í fanginu
Ég er með lausnina
Blaðar í bunkanum og les um stund
Ah já, hér er þetta.
Drekka meiri blút og fagurbláa drykki !
Mjög góð lausn. Setjum þvagpoka á Skabba og þá hætta að koma innlegg einni mínútu eftir að fólk er á ferli.
Ljómar upp Málið leyst.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
En Hvæsi, ef við gefum Skabba blút og fagurbláa drykki, þá pissar hann meira!
En Hvæsi, ef við gefum Skabba blút og fagurbláa drykki, þá pissar hann meira!
Stigsmunur, en ekki eðlismunur. Það útheimtir bara stærri poka.
Hrökkbrauðast raftur á þak og brasar við
Það er reyndar spurning hvort ekki sje hjer um óþarflega róttæka lausn að ræða. Í staðinn væri mun einfaldara að koma fyrir vatnsborðshallaskynjara í öllum baggalútískum klósettum og banna Skabba (og raunar öllum sem sjerlega hættulegt er að hleypa nálægt skrumgleypum) að koma í innan við 10 metra fjarlægð frá klósettum þar sem vatnsborðið hallast. Það gæti t.d. komið sjerstakt hljóðmerki ef það gerist. Í 99,9% klósetta ef ekki meir hallast vatnsborðið ekki og því myndi þetta tæpast valda neinum óþægindum.
Hljómar betur... þorir aftur að drekka
En má samt ekki setja á hann þvagpoka um helgar?
Ég er orðin þreytt á pissulykt fyrir utan (og innan) barinn.
En má samt ekki setja á hann þvagpoka um helgar?
Ég er orðin þreytt á pissulykt fyrir utan (og innan) barinn.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Númer hvað er þessi samfella? Er hún sæmilega kynþokkafull á að líta?
Ég held að það dugi ekkert minna en tankbíll utan á Skabba.
Væri þá ekki ráð að kaupa tvo poka ?
Á ekki Aulinn líka við þvagvandamál að stríða ?
Tvo tankbíla minn kæri, tvo tankbíla!
Nú er til þess að taka að tímasamfella Gestapósins er ekki ýkja efnismikil og má því vart við brestunum.