Af hverju er Gestapó að deyja?Brestur í óstöðvandi grát
Því fólk heldur að það sé eitthvað merkilegra til en gestapó... gæti líka verið skrattans smettisskruddan. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Já, bévítans hjáguðir og rækallsins skurðgoð.Blótar herfilega og rífur hár sitt
Helvítis skruddubuddan.
Ég tek heilshugir undir allt laspur í garð djöflaskruddunnar.
Ég er bara svo upptekinn að ég má ekkert vera að þessu...fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku!
Nú hef ég enga afsökun fyrst prófin eru búin.
Af hverju er Gestapó að deyja?Brestur í óstöðvandi grát
Það er vegna hnignunar málfars. T.d. ætti fyrirsögnin á þessum þræði að vera „Hvert er eiginlega málið?“. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið en vill með þessu látbragði þó alls ekki gefa til kynna að þetta sé ekki satt því að öllu gamni fylgir nokkur alvara - og öfugt
Önnur ástæða eru langar fjarverur ritstjórnar, einkum Vendihnapps.
Gestapó mun ætið lifa þó fólkinu fækki. Samanber fámenn samfélög sem verða sterkari og nánari innbyrðis enn þau fjölmennu.
Fyrir mörgum árum skrifaði ég á Póið lærðan pistil um að hittingar dræpu netsamfélög. Því miður tóku allir sem höðfu mætt á Gestapóhitting til sín persnulega og urðu ekki minna reiðir en ef ég hefði birt myndir af mæðrum þeirra við störf í vændishúsi. Ég ætla því ekki að endurtaka þessa kenningu mína að sinni.
Þýska?
Þýska?
Já, svo er það þjóðverjakvikindið hann Rego gamli. Hann hefur verið til vandræða hér.
Fattaði þennan einhver?
Fyrir mörgum árum skrifaði ég á Póið lærðan pistil um að hittingar dræpu netsamfélög. Því miður tóku allir sem höðfu mætt á Gestapóhitting til sín persnulega og urðu ekki minna reiðir en ef ég hefði birt myndir af mæðrum þeirra við störf í vændishúsi. Ég ætla því ekki að endurtaka þessa kenningu mína að sinni.
Ég hef aldrei mætt á svona hitting og ætla mér það heldur ekki, því ég er nokk viss um að þar verð ég hökkuð í spað og útskúfuð endanlega útúr samfélaginu.
Segðu mér hvað heitir þessi lærði pistill þinn?
Segðu mér hvað heitir þessi lærði pistill þinn?
Hann týndist hér um árið þegar Vendihnappur eyddi öllum innleggjunum mínum.
Af hverju er Gestapó að deyja?Brestur í óstöðvandi grát
Ekki er hún nú að deyja, ekki strax, en ansi fámennt er hér. Mér finnst einhver niðursveifla átt sér stað alveg í vor.
Svo er það náttúrlega brotthvarf Jóakims Aðalandar. Eftir það er svæðið eiginlega eins og Lúdó og Stefán án Stefáns.
Svo er það náttúrlega brotthvarf Jóakims Aðalandar. Ef það er svæðið eiginlega eins og Lúdó og Stefán án Stefáns.
Mér finnst að við ættum að hefja átak í að henda Jóka aftur inn á Gestapó. JÓAKIM HEIM!