Hér hlýtur bara að hafa verið til samhverfuþráður fyrr. Hins vegar finn ég hann ekki.
Hingað skal sumsé dæla heimaföndruðum eða öðruvísi tilorðnum samhverfum (þó ekki úr hinu baggalútíska samhverfusafni) - og gjarnan á hinum og þessum tungumálum. Vissulega er bara einn Pói sannnefndur samhverfukonungur, en allir gætu haft gaman af að reyna.
Ég byrja á einni þýskri, en skemmtilegri, sem Eyrbekkingur nokkur kenndi mér í dag:
Ein Neger mit Gazelle zagt im Regen nie.
Og tvær heimaföndraðar:
Át Agnar ranga tá?
Nam Anna Panna margra mánaða nám argra mannapanna?? Man!
Ein magnaðasta samhverfa allra tíma er þessi - því að hún er svo sönn að merkingu:
A man, a plan, a canal. Panama!
Úr því að samhverfusköpunargáfan hefur yfirgefið mig að sinni ætla ég að leyfa mér að peista hingað nokkrum dönskum samhverfum, gúgluðum í von um að það gleðji augu einhverra.
* Den laks skal ned
* Damejer Nis Berg greb sin rejemad
* Lås oksemaden ned og giv Viggo denne dameskosål
* Selmas lakserøde garagedøre skal samles
* Trolde med lort
* Knud sagde: fed gasdunk
Þetta er æði Stekkur hæð sína
Ragnar angar.
Alli Ragnar angar illa.
Þessa ágætu samhverfu rak á fjörur undirritaðs nú fyrir skemmstu:
SNIÐ ROLLU; FULLORÐINS
Svo er það verulegt ánægjuefni, að nokkrar nýjar, bráðskemmtilegar, hafa bæzt við í samhverfusafn ritstjórnar uppá síðkastið. Húrra fyrir því!
Allt að gerast – enn ein samhverfa fundin:
ANNA MAN GAS SAGNAMANNA
Ljómar upp
Við þetta má m.a.s. bæta:
ANNA MAN GAS ARGRA SAGNAMANNA
Runnu tár á tunnur.
SÚ HÁA Á HÚS
GÍRAFFAR GRAFFA RÍG
01.02.2010
Sé að Uppi var þegar búinn að vekja athygli á þessu.
All-altóma kolgoraða Hanna sá litrófið, áði, fór til ásanna Haðar og Loka mót Lalla.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Nallann allan.