Andlausir gætu alveg kastað fram fyrripart og svo sent inn heildina þegar einhver botnar. Já eða við gætum startað 'fullyrðingarmóti'.
Jafnvel öfugmælamóti.
Guðjón Arnar gleðjast má.
Og hér koma nýustu tölur úr Baggalútskjördæmi.
Froskamannaflokkurinn 258 atkvæði
Sjálfskiptingaflokkurinn 494 atkvæði.
Sjampóhylkin 997 atkvæði
Fríðleikshreyfingin 9 atkvæði
Orgaraflokkurinn 257 atkvæði
Til vinstri sprænir 888 atkvæði
Já, það er nokkuð sniðugt. Ég er bara svo andlaus, að ég gæti í besta falli kastað inn botni. Án þess að hafa fyrripart til viðmiðunar.
haha,
Guðjón Arnar gleðjast má.
Gaman Sjöllum er nú hjá.
Guðjón Arnar gleðjast má.
Gaman Sjöllum er nú hjá.
Ástþór mun á alþing ná.
Bankað var á búsáhöld
í Bankastræti núll.
Og botna svo...
Bankað var á búsáhöld
í Bankastræti núll.
Víst ávalt þeim vana halt
að versla í Bónus Mall.
Guðjón Arnar gleðjast má.
Gaman Sjöllum er nú hjá.
Ástþór mun á alþing ná.
Ekkert Samfylking mun fá.
Það sýnir sig, að það gerist því léttara að ríma, sem lengra líður á kosninganóttina.
Guðjón Arnar gleðjast má.
Gaman Sjöllum er nú hjá.
Ástþór mun á alþing ná.
Allir munu gleðjast þá.
Ég biðst afsökunar á stílbroti, en eins og við öll vitum þá fylgi ég fæstum reglum og þá þegar slíkt gerist þá er reglan sú að ég er reglulega reglulaus strákur með reglustiku á rassi... jæja stoppum núna áður en ég fer yfir strikið.
Nei, þetta var líka alveg rétt niðurlagslína. Eða munum við gleðjast, þegar Ástþór fer á þing, eða annað slíkt? (að vísu mun ég gleðjast óumræðanlega, en það er annað mál). Að játa fyrri öfugmælum, með öfugmæli, er í raun öfugmæli, og er það vel.
O-flokkurinn fær víst fimm,
en fær þó varla sex.
Nú er ég þannig stemmdur að ég er það sem kallað er 'á rassgatinu' (e. on the ass) og ég veit ekkert hver hlekkurinn er að fésbókar RÚVinu... nennir einhver að hjálpa mér?
AFBRAGÐ! Kærar þakkir, þú bilaði maður.
Ertu ekki annars í hressum stemmara? Og hvaða árans ræðismaður/sendiherra bar ábyrgð á möguleikum þínum til kos(t)ninga?