Næstkomandi föstudag, þann 3. apríl 2009, klukkan 20:00 GMT, verður þarfaþing sett. Þinghald verður með hefðbundnu sniði, utan einnar undantekningar: Sekkjapípuleikur verður ekki leyfður að þessu sinni.

Ég mæti.
Ég kem...og ef einhver góður maður tekur mig að sér kem ég vonandi aftur og aftur og aftur ... Oj Litla hættu að vera svona dónaleg! Skottast og flissar
fer að grenja Ég kemst ekki.
Þar sem Framsókn er hvort eð er ekki í stjórn sé ég enga ástæðu til að mæta á þing. Situr í fýlu heima hjá sér
Það er afar ólíklegt að ég mæti.
Það er bjargföst trú mín að ég hafi ekkert að gera, hvorki á föstudagskvöldið, né á laugardagsmorguninn.
Ég rek að öllum líkindum inn nefið.
Kíki, þó ekki væri nema í mýflugumynd.
Ég mun örugglega mæta eftir vinnu.
Og ég geri ráð fyrir því að tígrisdýr séu leyfð eins og venjulega. xT
Fyrst Andþór fer, þá fer ég.
Ég verð væntanlega föst í skafli hér á hlaðinu og Upprifinn hefur sko ekki bæjarleyfi.
Vjer vonumst eftir að mæta en þó með óvenju mörgum fyrirvörum, vjer munum e.t.v. hafa áform fyrir laugardag er krefjast þess að vakna ei mikið síðar en kl. 8 laugardagsmorgni, þar að auki gengur erfiðlega að losna alveg við kvef/hósta/slappleika/flensu/hálsbólgu er hrjáð hafa oss í nær 3 vikur með ýmsum tilbrigðum. Ef vjer verðum enn slæmir af krankleika þessum á föstudag förum vjer fram á að fá að vita af því ef útlit er fyrir að óvinir ríkisins mæti því þá komum vjer örugglega í þeim tilgangi að gera á þá sýklavopnaárás.
Ég kem...og ef einhver góður maður tekur mig að sér kem ég vonandi aftur og aftur og aftur ... Oj Litla hættu að vera svona dónaleg! Skottast og flissar
Hrökklast afturábak og hrasar við Að koma oft á sama Þarfaþingið ?? Klórar sjer í höfðinu og sjer að tímavjelin er sem betur fer á sínum stað
Þar sem Framsókn er hvort eð er ekki í stjórn sé ég enga ástæðu til að mæta á þing. Situr í fýlu heima hjá sér
Dugar sú staðreynd að Framsókn ver stjórnina falli yður til að mæta ?
Kíki, þó ekki væri nema í mýflugumynd.
Ljómar upp Oss hefur einmitt lengi langað að prófa að gera úlfalda úr mýflugu. Munum vjer loksins hugsanlega prófa það nk. föstudag.
Og ég geri ráð fyrir því að tígrisdýr séu leyfð eins og venjulega. xT
Svo fremi að þau sjeu eigi mjög hungruð Íhugar að taka enga áhættu og mæta íklæddur sjerstyrktri kóbaltbrynju (ef af mætingu verður).
Mig langar geðveikt að mæta en ég verð samt að hafna boðinu.
Það eru allar líkur á því að ég mæti og verði ekki alveg þurr að innan. Hexia hefur það til umhugsunar að mæta en hún ætlar að vera alveg skraufþurr að innan. Má mæta með blokkflautu?
Nei, bara fjölbýlishúsaflautu.
Raðar saman fimmtán þokulúðrum og tengir við loftpressu og setur af stað óbærilegan hávaða
SKO, HÉR ER FJÖLBÝLISHÚSAFLAUTA
Dregur rauða takkann hans Vlad upp úr vasanum og fer að sveifla honum
HÉR ER SVO TÚRBÓ TAKKINN...held ég
Hmm..það má vel hugsa sér að mæta. Hugsar málið