Þýðir nafn þitt ekki örugglega það að þú sért af Blöndals-ætt?
Er það rétt sem ég hef heyrt að Auddi Blöndal og Pétur Blöndal séu bræður, en að Halldór Blöndal sé faðir þeirra?
Hvort ertu kallaður Blönni eða Blöddi?
Blössi kannski?
Eða Blöbbi?
Er þér sama þó að þú sért kallaður Karborator?
Eða Karri.
Karbi?
Bori?
Tori?
Bori Tori?
Nei aldeilis ekki. Engum Blöndælum er ég skyldur, og varla kominn af þeim heildur. En, jú, það sýnist mér vera rétt ættfræði hjá þér Hlégestur, að Auddi og Pétur Blöndalar séu bræður, og Halldór faðir þeirra. Því má bæta við, að Rósa B. Blöndal er mamma Halldórs, og þessvegna eru þeir allir bæði hagmæltir og fluggáfaðir.
Blöndungur sem nafn hefur yfir að ráða afar breiðu sviði hugtengsla (útl. assósjóna), s.s. bland í poka, blöndukanna, bland (drykkur), blendingur, bensínblöndungur, o.s.frv.
Sem stytting á nafninu hefur verið notað Blöndi, eitt sinn hafði lappi það í vísu.
Karborator er og eðlileg útlenskun á einum af hugtengslum nafnsins Blöndungs. Þessvegna hef ég síst á móti því.
Hinsvegar tel ég að stytting á Karbúratori hljóti að verða Bryti.
Skiptir um kerti og platínur
Svipast um eftir beinni innspýtingu
Blandar geði
Blandar sig
blandar landa upp til stranda
og
vandar sig svo við að brugga bjór
Hei! Þrjú (núna fjögur) brún innlegg í röð! Þetta er met.
Æ, Hlégestur skaut sér á milli.
Blandar blöndu af bröndu og böndum
Hættir þessu rugli og fær sér dísel
hellir litaðri dísel í glas handa Galdra
Hei! Þrjú (núna fjögur) brún innlegg í röð! Þetta er met.
Ég skildi þetta ekki fyrren ég sá myndirnar, því að mér fannst að Günther hlyti að vera grænn einsog hundraðkallinn.
Hættir að lesa Baggalút og fer að skoða myndirnar í staðinn.
Er þetta brúni þráðurinn eða græni?
Græni, a.m.k. svo lengi sem þetta innlegg vort er nýjasta innleggið í þræðinum.
Hann er skemmtilega tvílitur þessi þráður, og Blöndungur meir að segja grænbrúnn.