Í ljósi þess að ég hef undanfarið ferðast víða og veit raunar minnst um það hvert ég hef farið, vil ég leggja fyrir meðlimi Vísindaakademíu Baggalúts eftirfarandi:
Gestapóið er ekki til!
Raunhæf stofnun þess fer fram með viðhöfn hinn 3. júní 2026.
Með lesvél þeirri sem ég hef nýtt til þess að skoða gögn þaraðlútandi hefi ég ekki fundið örðu af upplýsingum um Gestapóið, utan Gestapósins, fyrr en eftir þessa dagsetningu.
Ég bið ykkur því að aðstoða mig við að útskýra þetta og bið jafnframt aðra um að sannreyna þetta, ellegar afsanna.
Með virðingu og fyrirvara um geðbriðgi,
Júlíus prófeti
Felur allar teikningar af tímavélinni í afar öruggu öryggishólfi í nýstofnaðri Bankalútíu
Drekkur Ákavíti til að muna
Góður frasi. Ég drekk til að muna. Leggur hann á minnið.
Finnur rauða takkann hans Vlad á gólfinu
Hvað ætli gerist ef ég ýti á þetta á þessum þræði
hugsar sig um og bíður
Sér tvennt sem vekur undrun og athygli.
A. Ívar þegir
B. Ívar virðist vera að huxa.
Fer að skoða þessar furður nánar og rekur sig, alveg óvart, í takkann.
Finnur rauða takkann hans Vlad á gólfinu
Hvað ætli gerist ef ég ýti á þetta á þessum þræði
hugsar sig um og bíður
NEI !!! Fölnar upp
Í ljósi þess að ég hef undanfarið ferðast víða og veit raunar minnst um það hvert ég hef farið, vil ég leggja fyrir meðlimi Vísindaakademíu Baggalúts eftirfarandi:
Gestapóið er ekki til!
Raunhæf stofnun þess fer fram með viðhöfn hinn 3. júní 2026.
Með lesvél þeirri sem ég hef nýtt til þess að skoða gögn þaraðlútandi hefi ég ekki fundið örðu af upplýsingum um Gestapóið, utan Gestapósins, fyrr en eftir þessa dagsetningu.
Ég bið ykkur því að aðstoða mig við að útskýra þetta og bið jafnframt aðra um að sannreyna þetta, ellegar afsanna.
Með virðingu og fyrirvara um geðbriðgi,
Júlíus prófeti
Þetta skýrir ýmislegt því vjer höfum einmitt sýnt ótvírætt fram á að nær engir Gestapóar eru til. Þetta er því í samræmi við þá staðreynd. Hvernig hægt er að skýra þetta er mun flóknara mál. Hugsanlegt er að tímavjelar komi þar við sögu en sje svo felur það jafnframt í sjer vísbendingar um samsæri óvinveittra afla sem láta tímavjelarnar sýna rangan tíma. Það leiðir jafnframt af sjer (sje þetta rjett) að núna er eigi árið 2009 heldur arið 2026 eða eitthvert ár eftir það.