Best væri að finna upp eitthvað alveg nýtt orð, og þá væri það bara aukageta ef orðið næði einhvernveginn að lýsa verkanaðinum sem felst í screencastingi. Ný orð - einföld, þjál og falleg. Einmitt þannig er hægt að nota þau í skáldskap!
Helst eitthvert einsatkvæðis orð sem félli í sjaldgæfan beygingarflokk.
Gætirðu gefið mér nákvæma hugmynd um hvað þetta orði þýðir?
Screen, er það ekki tjald?
Líklega skiptir það engu ... dæsir mæðulega og hallar höfðinu út um gluggann
Ívar: fylgdu stiklunni minni á síðunni fyrir framan, þá áttarðu þig á hvaða fyrirbæri þetta er.
Regína: Jú, screen þýðir vissulega tjald. E.t.v. var ég allt of fljótur að vísa tillögu Krossgötu um tjaldvarp á bug. Það er bara vel athugandi.
En einhvers konar skin? Er ekki komin lengra með það en að vera enn þá föst í skjám. Skjáskin.
Hef reyndar verið að hugsa um íð líka, íðskin.
Var nokkuð komið íslenskt orð yfir podcast? Einhvern veginn finnst mér að þessi tvö orð mættu vera tengd í íslensku þýðingunni.
Var nokkuð komið íslenskt orð yfir podcast? Einhvern veginn finnst mér að þessi tvö orð mættu vera tengd í íslensku þýðingunni.
Jú, það er hlaðvarp Ljómar upp
Nú hafa gömlu myndvarparnir í kennslustofunum flestir lagt upp laupana. Þar sýndi kennarinn glærur stundum á hvolfi, speglaðar eða jafnvel hvort tveggja við mikla kátínu áhorfenda en þessi tækni gerir nær alveg það sama, þó er þetta meira lifandi en tússlitaðar glæruúrklippur. Ég man að keypt var í minn iðnmenntaskóla skjár sem hægt var að setja ofan á myndvarpana (gömlu), nokkurs konar fyrirrennari skjávarpanna, og gat myndavarpinn þannig gert raunverulega það sama og sýnt er í hlekknum (í MUN minni gæðum að vísu).
Ég legg til að orðið myndvarp verði notað líkt og orðin hlaðvarp og gagnvarp. Síðan verði orðið myndvarpi einfaldlega notað yfir þessar gagnlegu græjur.
Nú skal ég sýna ykkur á myndvarpinu... o.s.frv.
Var nokkuð komið íslenskt orð yfir podcast? Einhvern veginn finnst mér að þessi tvö orð mættu vera tengd í íslensku þýðingunni.
Jú, það er hlaðvarp Ljómar upp
Alveg rétt. Það minnir mig samt bara á að varpa einhverju út á hlað.
Skjánám (menn nema það sem gerist á skjánum með töluðum leiðbeiningum)
Var komin einhver lausn í þetta mál hjá þér hlewagastiR?
Það væri gaman að sjá hver niðurstaðan varð.
Niðurstaðan varð tjaldvarp. Ég hef tjaldvarpað töluvert síðan ég spurði og nota eingöngu þetta orð. Flestum fellur vel við það strax, hinir segja það venjast vel.
Afbragð! Ég hefði stungið upp á orðinu sjávarp en það er líklega ekki betra.
Krossgata á heiðurinn af þessu. Enda snillingur.
Hún er svo sannarlega gínius...