Ég hef ákveðið að eyða þessum fjármunum í að byggja kappaksturbraut. Ljómar upp
Sendir sérþjálfaðar kappakstursbrautasmíðamörgæsir til að hefjast handa.
Brautin verður vígð í vikunni með fyrsta kappakstri Baggalútíu, í Baggarallýinu.
Nú eitt af lykilatriðunum við að halda keppni í kappakstri er að fá keppendur og því vona ég að sem flestir skrái sig.
Reglurnar eru einfaldar: Hver íbúi Baggalútíu getur skráð eitt lið til keppni. Farartækin verða að lúta náttúrulögmálunum (svona flestum) en annars mega þau vera hvernig sem er bíll, hjól, hjólabíll, bilhjól, hjólbörur, hestavagn eða bara það sem þið viljið. Farartækið verður þó að ferðast á jörðinni en má þó svífa aðeins yfir henni. Fræg eða hættuleg farartæki eru ekki leyfð en samt velkomin. Vopn og hverskonar svindl er heldur ekki leyfilegt en þó ekki bannað og í sumum tilvikum verðlaunað.
Kappasktursbrautin sjálf verður ein sú hættulegasta í heimi og mun jafnvel toppa hina þekktu sjálfsmorðsbraut Crashcanyon á plánetunni Klemens VII.
Svo kæru póar, skráið liðið ykkar sem fyrst og ekki gleyma að láta fylgja:
1. Nafn liðsins og ábyrgðamaður
2. Mynd af farartækinu
3. Hver verður ökumaður farartækisins.
Tekið er við skráningunni á þessum þræði, knús!
Skráir sig til leiks
Ég mun að sjálfsögðu nota kappaksturskústinn minn:
Flugnorn: Hexia de Trix
Heiti liðsins: Púff!
Ég, Ebenhauser Gútmoren Engelnikkel skrái hér með lið mitt og bifreið Rauðu þrumuna í aksturinn.
Vegna aldurs mun ég ekki aka sjálfur en mun njóta þar dyggrar aðstoðar móður minnar:
Það á enginn séns í mömmu, og ekki ef hún er á þrumunni. Ljómar upp
Ahhh... þetta lýst mér vel á.
Ég skrái hér með til leiks einn af mínum eðalköggum:
Sökum handaleysis hérna megin, þá verður bílstjórinn góðvinur minn Tígrisdýramaðurinn:
Liðið mun heita Kormákur og ábyrgðamaðurinn er þessi fiskur:
Ég gæti þurft kennitöluna hjá þessum fiski Tígra.
Farartækið : Rauða hættan.
Liðið heitir Básúna.
Og ökumaður er frændi minn, Rajjiv Gretzky,
Reyndu nú að vera frumlegur Gretzky.
Vjer skráum oss hjer með formlega til leiks. Má nota tímavjel svo vjer getum komist í mark áður en keppni hefst ?
Vjer gerum ráð fyrir að það sem vjer spurðum um sje löglegt en sje eigi svo munum vjer nota þetta farartæki:
Eða hugsanlega þetta ef prófanir leiða í ljós að það virki og sje nógu hraðskreitt (eins og sjá má standa prófanir á því enn yfir):
Nafn liðsins er Fyrirfram sigur í tíma og rúmi og ábyrgðarmaður liðsins er vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov.
Ökumaður verður frænka vor, Yevgenyeva Fuckova. Reyndar verða ökumenn þrír en Yevgenyeva verður formaður ökustjórnar. Síðan verður nokkurra manna ökuráð með oss sem formann.
Nafn liðsins er Rauðhnakkinn Fljúgandi, ábyrgðarmaður þess er dóttir mín, sem hvort eð er fæddist stórskuldug.
Fararskjótinn er Ljúfur frá Stóra-Ármóti.
Knapinn er hinn þaulreyndi Abraham "Snarfari" Sturluson
Þjálfari knapans er síðan kvennagullið Hafliði Afdal
Setur á sig hjálminn og þenur hjólið
Hvenar byrjar svo keppnin ?
Skráir liðið sem heitir Dula fulla og mennirnir
Svo kemur hér mynd af einkaþjónunum og aðdáendaklúbbs klappliðinu mínu, svona til gamans.
Ökumaður verður frænka vor, Yevgenyeva Fuckova. Reyndar verða ökumenn þrír en Yevgenyeva verður formaður ökustjórnar. Síðan verður nokkurra manna ökuráð með oss sem formann.
Leyfa reglur keppninnar að skipt sje um ökustjórn eftir skráningu eða er skráningin endanleg ? Yevgenyeva neitar reyndar að víkja og segir að beiðni um slíkt sje einsdæmi um allan hinn baggalútíska heim Brestur í óstöðvandi grát.
Ökumaður verður frænka vor, Yevgenyeva Fuckova. Reyndar verða ökumenn þrír en Yevgenyeva verður formaður ökustjórnar. Síðan verður nokkurra manna ökuráð með oss sem formann.
Leyfa reglur keppninnar að skipt sje um ökustjórn eftir skráningu eða er skráningin endanleg ? Yevgenyeva neitar reyndar að víkja og segir að beiðni um slíkt sje einsdæmi um allan hinn baggalútíska heim Brestur í óstöðvandi grát.
Elsku Vlad. Er ekki til nein almennileg mynd af þeirri fræknu frú .
Nei því miður ekki. Hún brenndi þær allar.
Ég hugsa að keppnin fari frekar fram á sunnudaginn eða mánudag. Það væri gaman ef fleiri skráðu sig. Þegar menn eru búnir að skrá sig þarf ekkert að hugsa um það frekar. Ég mun sjá um alla vinnuna, lýsa keppninni og tilkynni sigurvegara.