Vér, hlewagastiR I, launsonur hins burtkallaða Hakuchis I, höfum nú nú um nokkurra mánaða skeið ríkt yfir Gestapó-krúnunni í hásæti voru með Regínu drottningu oss við hlið.
Sökum þess hversu gaman það er að eiga drottninguna fyrir drottningu og hvers áhugaverður krúnunautur hún hefur reynst hefur dregist úr hófi fram að skipa í laus embætti í hirðinni.
Þó lá eftirfarandi fyrir:
- Upprifinn: Konunglegt níðskáld
- Villimey Kalebsdóttir: frilla hans hátignar og sérskipaður sláturmakkari
- Jarmi: Friðill hennar hátignar
- Væni-Grétar: Bangsi konungs. Má sofa á milli konungs og drottningar á hverri nóttu.
Hirðfólk föður míns var þannig skipuð:
-- Barbie hirðmey
-- Mús-Lí hirðmey
-- Hilmar harðjaxl skutulsveinn
-- Heiðglyrnir hinn hugdjarfi riddari
-- Jarmi drullusokkur
-- Sloppur skraddari Alheimsveldisins
-- Upprifinn níðskáld
Sjálfsagt er að þeir af ofantöldum haldi emættum sínum ef þeir óska nema Jarmi sem hefur verið hækkaður í tign. Hann má samt líka vera drullusokkur.
Eftirtaldar stöður eru enn lausar
- stallari
- prins
- prinsessa
- skáld dróttkvæðra lofgjörða
- prótókollmeistari
- yfirmaður lífvarðasveita
- blaðafulltrúi
- hirðfífl
- köttur
Auk þess má ávallt bæta við frillum og friðlum. Einnig hafa þegar skipuð frilla og friðill og farið fram á að frá sér friðilsfrillu annarsvegar og frillufriðil hins vegar sér til dægrastyttingar milli skyldustarfa.
Áhugasömum er bent á að senda inn rafræna umsókn á þessum þræði. Rafræn umsókn tekur þó ekki gildi nema undirrituð og þrívottuð pappírsumsókn berist til handhafa konungsvalds (forseta, biskups og keisara) - og skal hver þeirra fá hana í fjórriti.
Ég myndi sækja um embætti kattar ef ég væri ekki lífhrædd úr hófi fram. Svipast um eftir Tigru
Mig hefur oft dreymt um að vera prinsessaRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov, forseti Baggalútíu, kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra og viðskiptaráðherra Baggalútíu, æðstiklerkur skipulagsstofnunar Hreintrúarflokksins og sendiherra Baggalútíu við Satúrnus, kunngjörum með innleggi þessu að í krafti þess að vjer teljum aukin 'krossvaldatengsl' innan Baggalútíu ekki aðeins æskileg heldur nauðsynleg sækjum vjer hjer með formlega um eitthvert eitt embættanna prins, yfirmaður lífvarðasveita eða blaðafulltrúi og látum þeim er umsóknir afgreiða það eftir að ákveða hvert þessara embætta, ef eitthvert, oss hlotnast. Umsókn þessi hefur þegar verið send þeim aðilum er tilgreindir eru neðst í innleggi konungs og er oss kunnugt um að forseti hefur þegar sjeð umsóknina.
Ég fæ auðvitað að vera viceroy yfir sléttunni og barón yfir fellinu.
Embætti blaðafulltrúa ætti að henta vel með embætti mínu hjá ríkisbankanum.
Mér sýnist vanta hestamær/hestasvein. Ég óska hér með eftir að staða hestameyjar verði stofnuð og hafi hún yfirumsjón með hesthúsum konungs og kynbótum. Að því sögðu sæki ég að sjálfsögðu um framangreinda stöðu í trausti þess að aðilar þeir er fjalla um umsóknir samþykki.
Undirbýr ættbókarskrár vottaðar kynbótastimpli konungs fyrir handhafa konungsvalds
Ég væri örugglega flottur í lífvarðadjobbið.
Sýnir hlebba ferilskrána sína, Under Siege 1 & 2
Ég hef ákveðið að halda mig til hlés og ætla því ekki að sækja um neitt embætti við hirðina. Ég hlýt þó að minna á að enn er ég starfandi keisari.
Skrattans ljóti Skrumarinn
skollans ljóti álfur
enda þarmsins þrumarinn
þyngslalegi kálfur.
Það prumphænsni ætti kannski að sækja um dróttkveðuskáldsstóldrusluna.
Jafnframt sæki ég um embætti mannasiðaráðgjafa krúnunar, eða siðameistara ef þér Hlebbi líkar það betur?
Stallari. Mér líst vel á það. Hver er annars biskup svo fjórritið komist áleiðis?
Upprifinn mannasiðameistari? klórar sér í kollinum Hann yrði þá væntanlega einhvurs konar víti til varnaðar í mannasiðum, vont fordæmi, eða hvað?
Upprifinn mannasiðameistari? klórar sér í kollinum Hann yrði þá væntanlega einhvurs konar víti til varnaðar í mannasiðum, vont fordæmi, eða hvað?
var einhver að biðja Borgnesinginn að tala?
Upprifinn mannasiðameistari? klórar sér í kollinum Hann yrði þá væntanlega einhvurs konar víti til varnaðar í mannasiðum, vont fordæmi, eða hvað?
var einhver að biðja Borgnesinginn að tala?
Og hvað þá þig Upprifinn ? Verið þið bara báðir til friðs og mætið í glímufélagið svona einusinni.
Upprifinn mannasiðameistari? klórar sér í kollinum Hann yrði þá væntanlega einhvurs konar víti til varnaðar í mannasiðum, vont fordæmi, eða hvað?
var einhver að biðja Borgnesinginn að tala?
Þetta var nú óþarfi!
Hmm... köttur segiru? Einhvertíman minnir mig að ég hafi verið einhverskonar hirðköttur... þannig að ég hef reynslu.
Hmm... köttur segiru? Einhvertíman minnir mig að ég hafi verið einhverskonar hirðköttur... þannig að ég hef reynslu.
Heyrðu ég sé það núna í undirskriftinni minni.
Ég var Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins... og ég var líka Konunglegur listmálari við hirðina.
Ég sæki hér með um þær stöður aftur.

huhh.