Er þetta Bavette eða Bucatini í glasinu?
Jarmi er alveg sjóðandi heitur,en Madaman ætlar að vera einstaklega smásmuguleg og fá orðið uppá staf sem hún er að leita að.
Sér birkibrauð en vill ekki segja það af því hún er nýbúin að vera með mynd.
Var einhver að segja eitthvað. Lítur í kringum sig með spurnarsvip.
Tek ekki séns á að segja kannski rétt.
Birkifræ?
Já Grýta, birkifræ eru ofan á brauðinu.
Rétturinn er þinn kæra Grýta.
Takk takk Madam xT
Ég kem með nýja mynd seinna í kvöld eða á morgun, sem er líklegra.
Selskinn?
Skór?
Snjór?
Ský?
Strákur?
Annars er ég viss um að það er selskinn.
Það byrjar næstum allt á myndinni á essi, já Ljómar upp
Selskinn er það ekki. (og ekki heldur hitt sem þú nefndir)
Jarmi nefndi ekki steinvölur.
Sjór?
Jarmi nefndi ekki steinvölur.
Það er rétt. Hann nefndi ekki heldur, skóreimar, stúlku, snúru, sokka og fleira sem byrjar á s.... en þú hefur rétt fyrir þér Fergesji, ég var akkúrat að hugsa um steinvölur og ætlaði ekki að gefa rétt fyrir að giska á steina.
xT og rétturinn er þinn!
Þetta var flott mynd! Dáist að selskins fötunum.
Sammála! Mjög flott mynd og mig langar í svona selskinnsfatnað. Langar aftur til Grænlands í innkaupaferð