Sull.
Stuð.
Svín.
hnussar Ég hélt þetta væri of auðvelt. Fjegurra stafa orð sem byrjar á s. Hlutinn sér maður oft á hornstaurum girðinga og öðrum hlutum sem þarf að s***a svo þeir velti ekki um.
Þá er þetta stag eða stög.
Ekki ég heldur.
Það fer allt eftir því hvað stög eru.
Eftirfarandi er tekið úr reglugerð um girðingar frá Bútæknisviði RALA.
· Stag er vír á ská á milli efri hluta stólpa og festingar í jörðu til að halda horn- eða aflstólpa í skorðum.
· Stagsteinn er steinn grafinn í jörðu til festingar á stagi.
· Stagvír, sléttur vír notaður í stag, styrkleiki ≥ 500N oft um 3,75 mm.
Alltaf er maður að læra. Takk fyrir það.
En það eru engar girðingar á sléttunni góðu, svo ég þarf kannski ekki að nota það. Nema það sé líka stag sem heldur tjaldinu mínu uppréttu.
Alveg örugglega. Svo er nú til svolítið sem kallast píkustag, en ég mun ekki útskýra það nánar.
Hvað um það, rétturinn er Herbjörns.
Hvað kallarðu þá stögin ef þú kallar þau eigi stög?
Hvaða stög?
Eru þetta ekki bara vírar/ eða eitthvað liðtækt, sem halda staurum í réttum skorðum?
Klórar sér í höfðinu Hafiði aldrei heyrt um stög? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Alltaf er maður að læra. Takk fyrir það.
En það eru engar girðingar á sléttunni góðu, svo ég þarf kannski ekki að nota það. Nema það sé líka stag sem heldur tjaldinu mínu uppréttu.
Ég hefði nú haldið það, það er ekki nóg að hafa tjaldhæl ef ekkert er stagið.