— GESTAPÓ —
Vantar sérfræðiaðstoð vegna hugsanlegs nís vopns
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/1/09 21:29

Vér höfum grun um að vér höfum orðið skotmark einhverra nístárlegra aðgerða óvina ríkisins en oss er eigi ljóst hvernig einkennin eftir árásina lísa sér, oss er á einhvern undarlegan hátt ókleift að átta oss á þeim. Þó finnst oss sem eitthvað sé eigi eins og vera ber en áttum oss ómögulega á því. Óskum vér eftir aðstoð þegar í stað við sjúkdómsgreiningu og lækningu og leggjum til að líst verði ifir neiðarástandi í Baggalútíu komi í ljós að einkennin séu alvarleg ‹Bír sig undir að lísa ifir stríði gegn öllum þeim óvinum er kunna að finnast›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krossgata 15/1/09 21:37

Hefur ufsilon (y) og ufsilon í (ý) verið stolið frá þér?

Kvenskörungur forsetaembættisins. Hlerari við HB. Sporrekjandi ríkisins. Tilnefnd: Mesti laumupúkinn 2007 Gul ‹Drepur tímann› Ef þú getur lesið þetta ertu of nálægt. Laumuhluti: ÞráðurINN fundinn! 10. feb.. og annar 4. maí
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 15/1/09 21:39

Mér sýnist sem Zoidberg heilkennið hafið heltekið forsetann.

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 15/1/09 21:43

Nema óvinurinn sé / þjófurinn. ‹Dæsir út um gluggann›

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/1/09 21:49

krossgata mælti:

Hefur ufsilon (y) og ufsilon í (ý) verið stolið frá þér?

Hvað er það ? ‹Klórar sér í höfðinu›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Rattati 15/1/09 23:21

Einhverjir fegurstu og hljómmestu stafir í stafrófi okkar. Pössum okkur! Það lítur út fyrir að fasistarnir sem höfðu af okkur Zetuna á sínum tíma séu farnir að láta á sér kræla aftur! Berjumst, systkyni, berjumst! Látum ekki taka Y og Ý af okkur.

Formaður kvenfélagsins Truntan. Baróninn af Langtíburtistan.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
The Shrike 15/1/09 23:26

„We are the knights who say "Ni"!“

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 15/1/09 23:41

Vladimir Fuckov mælti:

Vér höfum grun um að vér höfum orðið skotmark einhverra nístárlegra aðgerða óvina ríkisins en oss er eigi ljóst hvernig einkennin eftir árásina lísa sér, oss er á einhvern undarlegan hátt ókleift að átta oss á þeim. Þó finnst oss sem eitthvað sé eigi eins og vera ber en áttum oss ómögulega á því. Óskum vér eftir aðstoð þegar í stað við sjúkdómsgreiningu og lækningu og leggjum til að líst verði ifir neiðarástandi í Baggalútíu komi í ljós að einkennin séu alvarleg ‹Bír sig undir að lísa ifir stríði gegn öllum þeim óvinum er kunna að finnast›.

ÞJER ERUÐ FARNIR AÐ NOTA BÓKSTAF HINS ILLA AUK ÞESS AÐ UFALÓNIN OG UFSALÓNIN MEÐ KOMMUNNI ERU HORFIN ÚR MÁLI YÐAR!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 15/1/09 23:42

Ó nei! Er Vlad orðinn lasinn?
‹Nagar á sér neglurnar af stressi›

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/1/09 23:44

Þetta er greinilega grafalvarlegt mál þó eigi sé oss ljóst hvað þetta ufsilon er. Teljum vér nauðsinlegt að þegar í stað verði hafist handa við leit að lækningu þar eð ómögulegt er að vita hvort þessu filgi einhverjar meiri hliðarverkanir eður Grímsei.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 15/1/09 23:45

Aðalmálið er þó að hann er engu minna krútt þrátt fyrir téðar breytingar á rithætti.

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 15/1/09 23:46

Einkennin eru klárlega geðræn. Sjúkdómurinn hlýtur því að vera geðræns eðlis. Ég legg til að forsetinn verði færður í Geðsjúkrahús Baggalútíu með hraði. Helst undir skjóli nætur. Áróðursfulltrúi hans ætti sem fyrst að gefa út yfirlýsingu þess efnis að hann hafi brugðið sér í opinbera heimsókn til lands hvers nafns verður ekki gefið upp vegna hættunar á að óvinir ríkisins komist að því hvar hann er. Þar með er engin leið að afsanna þessa yfirlýsingu.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 15/1/09 23:47

Herra forseti! Þjer skuluð leggja yður!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 15/1/09 23:50

Vladimir Fuckov mælti:

Þetta er greinilega grafalvarlegt mál þó eigi sé oss ljóst hvað þetta ufsilon er. Teljum vér nauðsinlegt að þegar í stað verði hafist handa við leit að lækningu þar eð ómögulegt er að vita hvort þessu filgi einhverjar meiri hliðarverkanir eður Grímsei.

Hjálpi okkur! Ástand hans fer snarversnandi! Hvar í fjáranum eru mennirnir í hvítu sloppunum?

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
The Shrike 16/1/09 00:01

Varaforsetinn þarf lýka að taka týmabundyð vyð völdum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 16/1/09 00:37

Fáðu þér nýtt lyklaborð.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 16/1/09 00:45

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 16/1/09 00:48

‹sækir kassa fullan af y, ý og je›
svona, þetta gæti gert eitthvað.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
     1, 2  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: