Sammála Línbergi; þetta ber öll einkenni Davíðs frá Fagraskógi.
Haukur söng þetta er það ekki?
ég bara veit ekki hver samdi texta fyrir Hauk en kannski gerði hann einhverja sjálfur.
ég giska á Hauk Mortens.
Ég hefði giskað á Davíð Stef. en þar sem búið er að giska á hann segi ég Steinn Steinarr.
Davíð Stefánsson?
Hárrétt. Haukur söng þetta náttúrulega líka.
Línbergur á réttinn.
Ljómar upp
Mikið er ánægjulegt að sjá þennan ágæta þráð, er ég upphaf á sínum tíma, endurreistan. Skál fyrir því!
Ljómar upp
Mjúkur, með kirfileg kampahár
kemurðu að dyrum í morgunsár,
upp þig úr munnvatni allan þværð,
augunum lygnir í sæld og værð.
Asskoti kannast ég e-ð við þetta. Þórarinn Eldjárn?
Þetta er Jón Helgason prófessor, úr kvæðinu á afmæli kattarins.
Þakka pent.
En, segið mér góðir hálsar, hver orti?
Drekka og fight-a frískar geð
fram í opinn dauðann.
Blóði gæti ég manna með
málað bæinn rauðan.
Dagur Sigurðar?
Pó kom með það, pang og hviss!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við Var þetta rétt? Ljómar upp
Þá spyr ég hver skilgreindi svo fallega hver getur talist skáld og hver ekki? Nafn kvæðisins má gjarnan fylgja.
Sá einn er skáld, sem elskar jörð og sól,
þótt eigi hvorki björg né húsaskjól.
Hann veit, að lífið sjálft er guðagjöf
og gæti búið einn við nyrztu höf.
Sá einn er skáld, sem þögull getur þráð
og þakkað guði augnabliksins náð.
Þetta er voða Tómas Guðmundsson eitthvað.
Jóhannes úr Kötlum?