Nei, ekki heldur.
Hver orti:
Eins og ólgandi blóð
er þitt lag og þitt ljóð,
þrungið lífi og voldugri þrá
til að rísa frá smæð
upp í himnanna hæð
þar sem heiðríkjan vaggar sér blá.
Þegar stórviðrið hvín
fegurst faldur þinn skín
og úr fjötrunum andi þinn brýst.
Eins og stormbarið strá
nötra strandbjörgin há,
er þú stríðandi’ í hæðirnar ríst.
Ekki Grímur, ekki Davíð.
Veit ekki hver samdi en finnst endilega að það sé til lag við þetta ljóð
Það er rétt.
Ekki Tómas. Já, þetta er vel ort.
Hugdetta: Guðmundur Ingi Kristjánsson frá Kirkjubóli?
Neibbs. Ég er nokkuð viss um að þetta er Reykvíkingur, en ég hef reyndar ekki kynnt mér það.
Allt í einu skýtur nafninu Ómar Ragnarsson í hugann.
Nei, ekki Ómar.
Nei, eldri.
Nei.
Freymóður Jóhannsson/Jóhannesson - (betur þekktur sem 12. september)?
Það er rétt! Þetta er seinna erindið af: Þú ert vagga mín haf / hvergi værar ég svaf ... t.d. sungið af Vilhjálmi Vilhjálmssyni.
Stekkur hæð sínaLjómar upp
Hver orti:
Rósa ljósa
reita skreyta
blóma ljóma
blíðir lýðir.
Björtum hjörtum
beinir reynir,
vengi lengi
víðir prýðir.
Dagur Sigurðarson?