Situr súr á svip niðri á bryggju og mænir út á fjarðarmynnið
Ég viss um það kemur enginn. Það hefur greinilega ekki verið neinn farþegi með strandfararskipinu til Ýsufjarðar í dag.
Samt er allt tilbúið í félagsheimilinu. Hafdís á Strönd búin að baka haug af vöfflum, þeyta fleiri gallon af rjóma og hita heilu stöðuvötnin af kakó... búið að dekka borð fyrir fleiri mann og svo kemur örugglega enginn.
Blessaður vertu ekki með þessa fýlu. Ég er þó alla vega hérna og ég á nú líka rammæli í dag. Annars var það nú ljóta vitleysan að auglýsa bara í "Ýsólfi". Það er nú ekki beinlínis mesta lesna blaðið á landinu... enda óttalegur Bændaflokkssnepill hnussar
Jæja, ég ætla alla vega að varða leiðina upp að félagsheimilinu ef einhver skyldi álpast hingað í veisluna. Heldurðu að Regína komi ekki alla vegaLjómar upp
Kemur á snævi þökktum landróvernum í gegnum snjóskaflana
Sæll Sundlaugur og til hamingju með rafmælið.
Færir Sundlaugi körfu með ostum, fínu rauðvíni, nýjustu bókina eftir Gulla Sendil og saltkex, innpakkað í sellófan
Kemur í loftbelgi
Halló er kaffi? Ljómar upp
Dregur upp hina myndarlegustu speedo sundskýlu og gefur Sundlaugi
Ljómar uppStekkur hæð sína
Vei, húrra, ég vissi að það myndi einhver koma. Velkomin, velkomin og komið inni í félagsheimilið og fáið ykkur hressingu. Skoðar gjafirnar og skín af gleði
Já og svo getið þið líka fengið ykkur mysu blikkar
Biðjið Hafdísi bara um að gefa ykkur af mysunni hans Ragnars.
Hváir Mysu!?! Hver heldur þú að vilji mysu þegar rjúkandi kakó er í boði? Það verður hins vegar fínt að eiga mysuna frá þér, Ragnar minn, þegar við setjumst að kvöldsnæðingi.
Rennur að félagsheimilinuí jeppa, snarast út.
Sælir piltar! Hélduði að ég myndi gleyma ykkur? Til hamingju báðir tveir!
Knúskyssir bæði Ragnar og Sundlaug.
Ljómar eins og sól Og það bætir enn í, velkomin, velkomin.
Ljómar upp Og Regína komin líka. Roðnar og strýkur varlega kinnina sem Regína kyssti
Komið inn, endilega, öll sömun... Halló, Hvæsi, ekki kaffæra Tigru í snjónum. Hún er örugglega sterkari en þú.
Hérna gangið í bæinn. Vísar gestum inn í félagsheimilið þar sem búið er að dekka borð fyrir tugi manns og kynnir Hafdísi frá Strönd sem staðið hefur í stórbakstri og kakómalli síðan snemma í morgun.
Hérna njótið bara og skemmtið ykkur vel. Ef einhver vill fara með gamanmál þá er sviðið þarna og svo er hérna píluspil og ballskák og og og hérna líka hérna svo er sko sundlaugin opin fyrir alla sem vilja fara í sund baðar út höndum og er mikið niðri fyrir. Þið segið bara henn Berglind frá Strönd, sko hérna sko dóttur hennar Hafdísar sko, sem vinnur í sundlauginni.... hún Berglind sko... ekki hún Hafdís... og og segið henni bara, sko henni Berglind, að ég hafi sent ykkur. Við fáum sko ókeypis í allan dag.
Hérna, svo gaman að fá ykkur.
Veður yfir fjöll og firnindi á snjóþrúgum og veltir fyrir sér af hverju fólk hafi verið að ganga á vínberjum
Til rafmingju Sundlaugur og Ragnar.
Gefur Sundlaugi kóbaltslegin sundgleraugu og Ragnari brú á lækinn
Æði... ég meina frábært. Labbaðirðu alla þessa leið, Krossa mín. Já, það er mikið á sig lagt. Komdu nú inn og njóttu góðgerða. Þú getur svo alltaf tekið strandfaraskipið heim á morgun, ef svo ber undir.
Bíddu nú við.. er ég að missa af teiti ?
Mætir svífandi á kústskafti
Til hamingju drengir, maður lætur sig nú ekki vanta á svona fagnað!
Knúsar Sundlaug og færir honum nýtt sundhandklæði í stíl við sundskýluna frá Tigru og sundgleraugun frá Krossu
Réttir Ragnari flösku af leyniefnabættu ákavíti Getur þú ekki notað svonalagað, ég veit það þýðir ekkert að færa honum Sunda neitt sterkara en malt... Blikkar Ragnar
Hvað segiði, er Hafdís á strönd í kakómallinu? Ég ætla, hérna, aaaðeins að rabba við hana. Laumast fram í eldhús og skvettir smá leyniefni í kakópottana. Stillir sig ekki um að hræra tvisvar rangsælis í hverjum potti og svo þrisvar réttsælis
Góðan dag. Mér var boðið til fagnaðar. Er eitthvert gistihús hér í byggðinni?